Úrslitin liggja nánast fyrir Heimir Már Pétursson skrifar 22. maí 2014 13:26 Grétar Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði segir eitthvað mikið þurfa að gerast til að breyta meginstraumum kannana um fylgi flokkanna í sveitarstjórnum landsins.
Úrslit sveitarstjórnarkosninga verða að öllum líkindum mjög nálægt því sem nýjustu skoðanakannanir hafa verið að sýna að mati prófessors í stjórnmálafræði. Eitthvað sérstakt þurfi að koma upp til að breyta stöðunni svo skömmu fyrir kosningar. Nýju framboðunum, Bjartri framtíð og Pírötum, virðist víða ganga vel samkvæmt skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið að undanförnu og gömlu flokkunum gengur að sama skapi illa að höfða til kjósenda á mörgum stöðum. Þannig er Björt framtíð á töluverðri siglingu á Akranesi, Akureyri og í Hafnarfirði svo dæmi séu tekin og Píratar virðast ætla að ná inn bæjarfulltrúum víða um land. Grétar Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði og aðferðafræði við Háskólann á Akureyri segir ekki einhlýtt að skýra þetta fylgi nýju flokkanna, en þetta séu þó sömu nýju flokkarnir og komu mönnum á þing í fyrra. „Það virðist vera að það fylgi sem féll utan fjórflokksins í fyrra sé álíka mikið ef ekki meira en það fylgi var í sveitarstjórnarkosningunum árið 2010 og virðist hafa fundið sér farveg í þessum sömu tveimur flokkum og nú eru komnir á þing,“ segir Grétar. Kosningarannsóknir hafa leitt í ljós að flokkshollusta hefur minnkað á undanförnum áratugum og sömuleiðis hefur sá hópur sem kýs alla jafna aðra flokka en fjórflokkinn svo kallaða stækkað með árunum og er nú um fjórðungur kjósenda. Það er því töluvert stór hópur kjósenda sem ný framboð geta höfðað til. „Það er síst að minka ef við horfum á síðustu tvær sveitarstjórnarkosningar og svo þingkosningarnar í fyrra. Fjórflokkurinn svo kallaði er ekki að sækja til baka sína hlutdeild í kjósendahópnum,“ segir Grétar. Nú eru aðeins níu dagar til kosninga og spurning hvort þeir flokkar sem eiga á brattan að sækja, eins og Samfylkingin víða um land annars staðar en í Reyjavík og Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík geti náð að rétta sinn hlut á svo skömmum tíma fyrir kosningar. „Það er náttúrlega alltaf hægt að reyna fram á síðustu stundu en reynslan sýnir okkur auðvitað að þegar við erum komin þetta nálægt kosningum þarf eitthvað afgerandi að gerast til að hlutirnir fari að snúast eitthvað verulega, til að meginstraumarnir fari að breytast,“ segir Grétar Eyþórsson.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Sjá meira