Rithöfundar ósáttir við greiðslur úr bókasafnssjóði Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 27. maí 2014 11:43 Auður Jónsdóttir rithöfundur segist ætla að mótmæla skertum greiðslum úr bókasafnssjóði.
Auður Jónsdóttir rithöfundur, sem meðal annars hefur skrifað bækurnar Ósjálfrátt og Fólkið í kjallaranum, kvartar yfir lækkun á greiðslum til rithöfunda úr bókasafnssjóði á Facebook síðu sinni. Fréttablaðið greindi frá því í dag að rithöfundar og aðrir sem rétt eiga á úthlutun úr sjóðnum vegna afnota verka þeirra á bókasöfnum fá í ár 17,85 krónur fyrir hvert útlán. Í fyrra var úthlutun fyrir hvert útlán 36,90 krónur. Auður segir: „Þokkalega súra ríkisstjórn, viltu gjöra svo vel að skila mér (og öllum hinum rithöfundunum) helmingnum af árlegum bókasafnaútlánatekjum mínum sem ég átti að fá núna en þú marghöfða æringi ákvaðst í geðþóttakasti að nota til annars, eins og til dæmis til að lækka veiðileyfagjaldið og hátekjuskatta!“ Margir taka undir með Auði en meðal þeirra sem tekur þátt í umræðunni er Ragnheiður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands og ritari úthlutunarnefndar greiðslna fyrir afnot bóka á bókasöfnum. Hún sagði í samtali við Fréttablaðið í dag að þetta væru náttúrulega engir peningar sem höfundar væru að fá fyrir lán á verkum sínum en þær fari eftir ákvörðunum fjárveitingavaldsins á hverju ári.„Yfirleitt finnst mér gaman að leggja peninga (sem þeir eiga) inn á reikninga rithöfunda. það var ekkert skemmtilegt í dag,“ segir Ragnheiður. Ragnheiður segir í athugasemdum við innlegg Auðar að þetta hafi legið ljóst fyrir frá því fjárlögin voru birt. Rithöfundasambandið hafi verið að glíma við þetta frá því snemma á síðasta ári. Auður segir þetta hafa farið framhjá sér en nú ætli hún virkilega að mótmæla.Fundað með ráðherra í síðustu viku Ragnheiður segir sambandið hafa fundað með Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra í síðustu viku. Hún segir erindum búið að rigna yfir ráðherrann og formanni sambandsins hafi komið mótmælum á framfæri. Ekki kemur fram í máli Ragnheiðar hvað hafi komið út úr fundinum með Illuga. Umræðurnar má sjá hér að neðan. Post by Audur Jonsdottir.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira