Fráveitu allra sumarhúsa við Þingvallavatn ábótavant Svavar Hávarðsson skrifar 16. maí 2014 07:00 Kröfur um fráveitumál eru hvergi strangari á Íslandi en á Þingvöllum. Fréttablaðið/Pjetur
Ekkert þeirra hátt í 700 sumarhúsa sem standa á verndarsvæði Þingvallavatns uppfyllir þær kröfur sem þar eru í gildi um fráveitumál. Frestur til að koma upp rotþróm sem uppfylla skilyrði hefur verið framlengdur í tvígang án umbóta á svæðinu. Þetta er niðurstaða samstarfshóps Heilbrigðiseftirlits Suðurlands (HES), sveitarfélaga og þjóðgarðsins á Þingvöllum um fráveitu- og neysluvatnsmál sumarhúsa innan verndarsvæðisins. Greinargerð um niðurstöðurnar verða kynntar nú um mánaðamótin. Leiðarljós vinnunnar var hvernig hægt er að vernda vatnasvið og lífríki Þingvallavatns frá mengun af völdum fráveitu, jafnt sem gæði neysluvatns. Á verndarsvæði Þingvallavatns er krafist ítarlegri hreinsunar á fráveituvatni en á vatnsverndarsvæðum annars staðar á Íslandi. Skal viðbótarþrep fráveitu sérstaklega miðað að því að lækka gildi mengunarefna sem Þingvallavatn er talið viðkvæmt fyrir „Þetta er í tómum ólestri, má segja. Það þarf að gera verulegar úrbætur alls staðar að kalla,“ segir Birgir Þórðarson, heilbrigðisfulltrúi hjá HES, en tölur lágu fyrir um sumarhús innan þjóðgarðsins í fyrra en nú hefur allt vatnsverndarsvæðið verið tekið út og sá grunur verið staðfestur að fráveitumál uppfylla hvergi nærri þær kröfur sem gerðar eru. Úrlausn vandans er ekki í sjónmáli. Hvorki hafa verið dregnar línur um hvaða búnað skal hafa við bústaði á svæðinu og lausnir á rotþróarvandanum eru ekki fundnar, þó hugmyndir hafi verið reifaðar. Birgir segir koma til greina að skipta svæðinu eftir jarðvegsgerð; þar sem er hraun verði að hlíta ströngustu reglum en þar sem dýpri jarðvegur er til staðar mætti vera með hefðbundnari tækni, þó strangari væri en víðast hvar. „Eina örugga lausnin er að nýta safntanka og keyra allt skolp í burtu, en það er mjög dýr lausn,“ segir Birgir. Hreinsigjald sumarhúsaeigenda er í dag um 7.000 krónur á ári en sá kostnaður myndi líklega verða fimmtánfaldur. Sprenging í ferðamannastraumi til Þingvalla gerir úrlausn vandans á svæðinu enn frekar aðkallandi, en nýleg salernisaðstaða sem tekin var í notkun við fræðslumiðstöðina við Hakið annar ekki þeim fjölda gesta sem sækir Þingvelli heim. „Samhliða því sem kanna þarf ástand fráveitna á öllu verndarsvæðinu er nauðsynlegt að hefja úrbætur á þeim nú þegar. Til þess þurfa viðkomandi stjórnvöld að vinna saman að lausnum fyrir svæðið. Horfa verður sérstaklega til þess hvernig hægt er að koma í veg fyrir mengun Þingvallavatns af völdum fráveitna. Neysluvatnsöflun og heilnæmi drykkjarvatns er að sjálfsögðu líka aðkallandi fyrir neytendur og ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir í stöðuskýrslu HES um málið í maí 2013.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira