Innlent

Sameining stofnana sem annast þjónustu við fatlað fólk

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Þess er vænst að jafnt faglegur og fjárhagslegur ávinningur verði af sameiningunni.
Þess er vænst að jafnt faglegur og fjárhagslegur ávinningur verði af sameiningunni. vísir/stefán
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og Tölvumiðstöðin verða sameinuð í eina stofnun. Stöðugildi hjá þessum stofnunum eru rúmlega níutíu.

Gert er ráð fyrir að sú þjónusta sem Greiningar- og ráðgjafarstöðin hefur sinnt og miðast við börn að 18 ára aldri verði útvíkkuð og nái þá einnig til fullorðinna.

Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneytisstjóri í velferðarráðuneytinu, fjallaði um fyrirhugaða sameiningu þessara stofnana í ávarpi sem hún flutti fyrir hönd félags- og húsnæðismálaráðherra á vorfundi Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Verkefnisstjórn sem ráðherra skipaði hefur unnið að undirbúningi málsins í samvinnu við stjórnendur stofnananna og starfsfólk þeirra og eins hefur verið lögð áhersla á samráð við hagsmunafélög notenda þeirrar þjónustu sem stofnanirnar veita.

„Það er töluvert stór hópur fólks sem í dag þarf að leita til tveggja eða jafnvel fleiri stofnana eftir þjónustu. Það segir sig sjálft að fyrir þetta fólk er mikið hagræði fólgið í því að geta fengið þjónustuna á einum stað – og eins ætti að vera auðveldara að samræma þjónustuna þegar svo háttar og sníða hana betur að þörfum hvers og eins. Það er einnig óhætt að ætla að sameinuð og þar með nokkuð stór stofnun eigi betri kosti en litlar stofnanir á því að styðja við faglegt starf og efla það, og stuðla að aukinni nýsköpun, þróunarstarfi og rannsóknum,“ segir Anna Lilja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×