Innlent

Sækja örmagna göngumann á Hvannadalshnjúk

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/gva
Björgunarfélag Hornarfjarðar er nú á leið á Hvannadalshnjúk til þess að sækja örmagna göngumann.

Þyrla Landhelgisgæslunnar mun einnig fara að svæðinu en skyggni er ekki gott og óljóst hvort hún komist að manninum. 

„Við fengum hringingu í hádeginu en um er að ræða mann í gönguhóp,“ segir Auðunn Kristinsson, verkefnastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar.

Maðurinn ku ekki vera ferðafær.

„Hann mun vera örmagna og kaldur. Líklega er um einhver veikindi að ræða. Ekki er skyggni fyrir þyrlu eins og staðan er. Við munum því reyna koma björgunarsveit að manninum.“

Uppfært klukkan 16:10: Maðurinn hefur verið sóttur og var flogið með hann til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×