Innlent

Skjálfti upp á 3,7 í Vatnajökli

Stefán Árni Pálsson skrifar
MYND/BJÖRN BÖÐVARSSON
Jarðskjálfti að stærðinni 3,7 mældist rúmlega ellefu km austnorðaustur af Bárðarbungu klukkan 14:41 í dag.

Nokkrir eftirskjálftar hafa mælst í kjölfarið og var sá stærsti af stærðinni 2,3.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þar sem upptök skjálftans voru. Upptökin eru merkt með grænni stjörnu á Vatnajökli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×