Gæti truflað heimsminjaskráningu Svavar Hávarðsson skrifar 17. maí 2014 07:00 Fréttablaðið/Pjetur
Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður útilokar ekki að fráveitumál á verndarsvæði Þingvalla geti haft neikvæð áhrif á fyrirhugaða skráningu Þingvallasvæðisins alls á heimsminjaskrá Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Aðeins hluti þjóðgarðsins á Þingvöllum er á heimsminjaskrá í dag, á forsendum sögu og menningar. Stefnt er að því að Þingvallavatn ásamt vatnasviði verði sett á heimsminjaskrá sem einstakar náttúruminjar á heimsvísu í framtíðinni. Skráningin mun byggja á forsendum náttúrufars og er undirbúningur slíkrar skráningar þegar hafinn, til dæmis með undirbúningsvinnu Náttúrufræðistofnunar Íslands við gagnaöflun um náttúrufar svæðisins. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær uppfylla sárafá af þeim hátt í 700 sumarhúsum á verndarsvæði Þingvallavatns þær kröfur sem þar eru í gildi um fráveitumál, sem er niðurstaða samstarfshóps Heilbrigðisnefndar Suðurlands, sveitarfélaga, Þingvallanefndar og fleiri. Spurður hvort bágt ástand frárennslismála á verndarsvæðinu geti haft neikvæð áhrif á heimsminjaskráningu svæðisins í heild, segir Ólafur Örn það hugsanlegt. „Ég get ekki svarað þessari spurningu afdráttarlaust. En auðvitað hljóta menn að spyrja þessara spurninga í samhengi við náttúrufar Þingvallavatns í dag, sem er einstakt. Spyrja hvort Íslendingar, sem óska þess að hafa umsjón staðarins fyrir hönd mannkyns, gæta svæðisins nægilega vel,“ segir Ólafur og hnykkir á því að með skráningunni sé viðurkennt að svæðið sé einstakt á heimsvísu og þurfi að standast kröfur sem fara saman við gildi þess. Það hljóti að ná til mengunar sem hefur áhrif á vatnið hvort sem það er frárennsli frá mannabústöðum eða önnur mengun. Hann telur að krafan hljóti að vera að þau atriði sem mannshöndin getur haft áhrif á séu löguð. „Það kæmi mér í sjálfu sér ekkert á óvart að sú krafa kæmi fram að þetta yrði skoðað sérstaklega áður en til skráningarinnar kemur,“ segir Ólafur Örn.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira