Hlúa að náttúruperlum meðan beðið er eftir passa Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. maí 2014 13:04 Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir að frumvarp um náttúrupassa sé tilbúið í ráðuneyti sínu. Hún segir að síðasti vetur hafi verið notaður vel en málið hafi verið of mikilvægt til að keyra það í gegnum þingið að þessu sinni. Sérstakt fjármagn verður veitt í sumar til þeirra ferðamannastaða sem liggja undir skemmdum vegna átroðnings. Gegn gjaldi mun náttúrupassinn nýtast sem aðgangur að helstu náttúruperlum landsins. Nokkuð skiptar skoðanir voru um útfærsluna á passanum hjá aðilum innan ferðaþjónustunnar og ekki tókst að klára frumvarp vegna passans á því þingi sem frestað var á föstudag. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra var gestur Sigurjóns M. Egilssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. „Við ákváðum að koma ekki fram með frumvarpið núna í vor. Ég mat það þannig að þetta mál væri allt of mikilvægt til að setja undir sig hausinn og keyra það í gegn. Ég vildi frekar klára þau mál sem mér fannst ekki kláruð í sambandi við þetta og freista þess að ná sátt um þessa leið sem ég tel algjöra forsendu fyrir því að koma þessu á. En við erum tilbúin með frumvarp og notuðum veturinn vel,“ sagði Ragnheiður Elín. Hún sagði að gjaldtaka á ferðamannastöðum hefði aldrei verið sjálfstætt markmið heldur náttúruvernd og öryggi ferðamanna, þ.e. að peningarnir nýttust til að tryggja það. Þar sem ekki hafi tekist að klára frumvarp um náttúrupassann hafi verið ákveðið að veita sérstakt fjármagn til þeirra ferðamannastaða þar sem aðkallandi þörf væri á endurbótum en Ragnheiður Elín sagðist ætla að kynna það mál í ríkisstjórninni í næstu viku. „Við erum með ákveðinn lista. Við erum að vinna þetta og ég kem vonandi með þetta inn í ríkisstjórn í næstu viku. Við komum með sérstaka fjárveitingu til að bregðast við þar sem að brennur, þar sem náttúran liggur undir skemmdum og þar sem hægt er að hefja framkvæmdir,“ sagði ráðherrann.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Fleiri fréttir Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Sjá meira