Kirkjuklukkur Hallgrímskirkju rugla íbúa í ríminu Jakob Bjarnar skrifar 19. maí 2014 16:11 Högni hefur verið að fikta í klukkuspilinu í Hallgrímskirkjuturni.
Kirkjuklukkurnar í Hallgrímskirkju hafa hljómað undanfarin tvö kvöld án þess að hægt sé að tengja það neinu sérstöku. Vísi hefur borist ábendingar þessa efnis; íbúar í Þingholtum og miðborginni hafa fengið að heyra í klukkunum án þess að þær hringi á heilum tíma eða nokkur kirkjuleg athöfn sé í gangi sem hægt er að rekja þetta til. Við eftirgrennslan hefur komið á daginn að þarna var tónlistarmaðurinn Högni Egilsson ásamt hjálparkokkum á ferð, að fikta í klukkuverkinu. Hreiðar Ingi Þorsteinsson er kirkjuvörður í Hallgrímskirkju. Hann segir að þetta sé vegna opnunar verks Högna á Listahátíð, sem flutt verður 22. maí en þá verður klukkum í Hallgrímskirkju sem og Landakotskirkju hringt sem þáttur í verkinu sem flutt verður við tjörnina. „Þeir voru að þreifa sig áfram með þetta. Ég hef aldrei heyrt annað eins hljóð í klukkunum,“ segir Hreiðar Ingi sem vona að þetta hafi ekki trufla íbúana um of. Hreiðar Ingi segir þetta miklar klukkur og mætti að hans mati vinna miklu meira með þær. Því miður eru stóru klukkurnar bilaðar, þar með talinn Stóri Hallgrímur, en þær eru fimm. Aðeins ein þeirra hljómar þegar boðað er til messu. Það þarf gríðarlega mikið afl til að hringja þeim og stendur til að lagfæra þær. Klukkuspilið sjálft er svo allt annað mál, sem samanstendur af minni klukkum. „Nú er sem allt í einu opnist möguleikar á að vinna með klukkurnar með þessu verki. Á sama tíma hefur komið til miditona, sem er nýjasta tækni, og þá geta klukkurnar spilað hvað sem er – það flæðir í gegnum kerfið. Mjög sérstakt,“ segir Hreiðar Ingi. Og þá er að sjá, eða öllu heldur heyra, hvort kirkjuklukkurnar í Hallgrímskirkju fara ekki að setja aukinn svip á Reykjavík með miklum hljóm sínum. Að neðan má sjá myndband sem lesandi Vísis tók af klukkuspilinu í gærkvöldi.
Tengdar fréttir Tveggja kirkjuturna tal Högna er opnunarverk Listahátíðar Högna Egilsson flytur fimmtán mínútna verk með klukkum Hallgrímskirkju og Landakotskirkju og bjöllukór næstkomandi fimmtudag. 16. maí 2014 16:45 Högni sveipaður dulúð og þokka Söngvari hljómsveitarinnar Hjaltalín fer með mann á slóðir Spinal Tap. 19. maí 2014 11:58 Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira
Tveggja kirkjuturna tal Högna er opnunarverk Listahátíðar Högna Egilsson flytur fimmtán mínútna verk með klukkum Hallgrímskirkju og Landakotskirkju og bjöllukór næstkomandi fimmtudag. 16. maí 2014 16:45
Högni sveipaður dulúð og þokka Söngvari hljómsveitarinnar Hjaltalín fer með mann á slóðir Spinal Tap. 19. maí 2014 11:58