Segir ólöglegt að skrá stjórnmálaskoðanir almennings Jakob Bjarnar skrifar 19. maí 2014 16:52 Gísli Tryggvason telur mikilvægt að fá úr því skorið hvort það standist lög; skrár sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið um stjórnmálaskoðanir fólks.
Dögun hefur sent Persónuvernd erindi og óskað eftir því að stofnunin kanni hvort stjórnmálaflokkar haldi skrár yfir stjórnmálaskoðanir einstaklinga, aðrar en flokksfélagaskrá, án tilskilinnar heimildar.Gísli Tryggvason lögmaður er að vinna í málinu og vísar í lög sem segja til um að upplýst samþykki sé áskilið frá þeim sem er að finna á slíkum skrám en samkvæmt 2. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eru stjórnmálaskoðanir viðkvæmar persónuupplýsingar. „Við teljum mikilvægt að fá úr því skorið hvort skrár sem Sjálfstæðisflokkurinn virðist lengi hafa haldið yfir stjórnmálaskoðanir almennings, standist persónuverndarlög,“ segir Gísli í samtali við Vísi. Nýverið óskaði umboðsmaður Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi eftir að fá afhenta lista yfir meðmælendur annarra framboða. Í fréttum um málið kom fram að tilgangurinn væri sá að strika meðmælendur af skrám yfir fólk sem haft yrði samband við í kosningabaráttu flokksins. Jafnframt kom fram að áralöng venja væri fyrir því að haldnar væru slíkar skrár yfir stjórnmálaskoðanir fólks. VestNord lögmenn telja slíka venju ekki veita heimild til skráningar viðkvæmra persónuupplýsinga. Dögun álítur sem sagt mikilvægt að Persónuvernd kanni hvort rétt sé að stjórnmálaflokkar safni slíkum upplýsingum um stjórnmálaskoðanir almennings og ef svo er hvort farið sé að lögum við meðferð slíkra upplýsinga. „Svo teljum við þetta ekki í samræmi við stjórnarskrárákvæði sem tryggir frelsi til skoðana. Persónuvernd hefur hlutverk og valdheimildir til að kanna þetta og því fól Dögun VestNord lögmönnum að senda þetta erindi,“ útskýrir Gísli.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira