Björgólfur Thor gagnrýnir bók Ólafs Arnarsonar Jakob Bjarnar skrifar 19. maí 2014 17:15
Nýverið sendi Ólafur Arnarson frá sér bókina Skuggi sólkonungsins – er Davíð Oddsson dýrasti maður lýðveldisins? Athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson, sem talinn hefur verið einn af lykilpersónum í hruninu til dæmis sem einn eigenda Landsbankans, fjallar um bókina og óhætt er að segja að Björgólfur sé fremur óvæginn gagnrýnandi. Hann segir að nú sé enn ein hrunbókin komin, að Ólafur fari á hundavaði yfir einkavæðingu bankana og fullyrði að nánast engir peningar hafi komið inn í Landsbankann og Búnaðarbankann við einkavæðingu þeirra. „Það er með ólíkindum að enn skuli þurfa að hnykkja á staðreyndum hvað varðar einkavæðingu Landsbankans, svo löngu eftir að þær eru allar komnar fram. 65% kaupverðs Landsbankans komu úr vösum eigenda Landsbankans,“ skrifar Björgólfur Thor. Umfjöllun Björgólfs hefst á orðunum: „Hátt í sex árum eftir fall bankanna og fjórum árum eftir útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis ganga sömu vitleysurnar enn ljósum logum í umræðunni. Höfundur nýjustu hrunbókarinnar dregur ekkert af sér. Bók hans hverfist að sönnu um fyrrverandi forsætisráðherra, en ýmis stórmál eru afgreidd snaggaralega – og ranglega.“ Bókadómurinn er svo undir fyrirsögninni „Skuggi múrmeldýrsins“ og þar segir ennfremur að fullyrðingagleðin ríði ekki við einteyming í bókinni. Og óvænt sé hún á köflum eins og þriggja ára pistill eftir Bubba Morthens. Björgólfur segir Ólaf vitanlega ekki þann fyrsta til að falla í þá gryfju að hafa það sem betur hljómar. „Höfundur bókarinnar Skuggi sólkonungs er vitanlega ekki sá fyrsti sem fellur í þá gryfju að hafa það sem betur hljómar. Það kemur þó spánskt fyrir sjónir að sá sem gjarnan vill teljast marktækur sem álitsgjafi skuli ekki gæta þess að fara rétt með staðreyndir, enda rýra augljós ósannindin bókina í heild. Að lesa hana er svipað og að horfa á kvikmyndina Groundhog Day: Ekkert breytist, sami dagurinn rennur upp æ ofan í æ. Og ef múrmeldýrið sér skugga sinn verður veturinn lengri. Nú er hins vegar orðið löngu tímabært að birti yfir umræðunni,“ skrifar Björgólfur Thor og slær með þeim orðum botn í dóm sinn sem lesa má í heild sinni hér.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira