Fastur í fangelsi í Kína vegna peningaskorts Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. mars 2014 14:00 Geir Gunnarsson. mynd/aðsend „
Við erum ráðþrota þar sem krafan um tryggingagjald þar til Hæstiréttur tekur málið fyrir eru 1,5 milljón íslenskra króna. Þetta eru meira en tíu ára laun meðal Kínverja,“ segir Edda Lára Guðgeirsdóttir, móðir Geirs Gunnarssonar, fanga í Kína. Liðlega þrítugur Íslendingur var dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Kína á síðasta ári. Vísir greindi frá þessu í ársbyrjun. Dómari í málinu hefur nú boðist til að láta hann lausan gegn eins og hálfs milljón króna tryggingu sem fjölskylda hans á ekki efni á. Geir Gunnarsson hefur verið búsettur í Kína í 10 ár. Í janúar á síðasta ári lenti hann í deilum við leigubílstjóra. Leigubílstjórinn reyndi að rukka hann um þrefalt hærri fjárhæð en Geir var vanur að greiða fyrir akstur um sömu leið. Geir lagði ríflega upphæð í sæti við hlið bílstjórans og fór úr bílnum og gekk til síns heima. Leigubílstjórinn fór á eftir honum, tók í aðra ermi hans sem rifnaði og sló Geir aftur fyrir sig til þess að hrista manninn af sér. Í kjölfarið höfðaði bílstjórinn mál gegn honum og var Geir gert að sitja 11 mánuði í fangelsi. „Það var aldrei einbeittur vilji Geirs að berja manninn í andlitið heldur einungis að losna.“ Hún segir lítið samræmi hafa verið í framburði leigubílstjórans og allan tímann verið á töluverðu reiki. Meiðsli hans hafi breyst frá degi til dags og málið hafa verið illa unnið frá upphafi til enda „Aðaldómari réttarins mætti ekki á tilsettum tíma, leigubílstjórinn mætti yfirleitt seint, illa eða alls ekki á þá fundi sem áður höfðu farið fram.“ Ákveðið var að bíða ekki eftir aðaldómaranum og tók aðstoðardómari málið að sér. Hann dæmdi Geir í 11 mánaða fangelsi og skildi hann hefja afplánun strax. Hann var þá settur í klefa með þrjátíu öðrum í Dalían borg og átti að flytja hann í annað fangelsi tíu dögum síðar. Geir áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og dvelur hann því enn í gæsluvarðhaldi á sama stað og fær enginn að hitta hann nema lögfræðingur hans. „Sem betur fer hefur Geir ótrúlegt jafnaðargeð og er nægjusamur. Hann þarf að sitja á gólfinu með krosslagða fætur í um það bil tvær klukkustundir á dag. Þessi stelling er eðlileg fyrir Asíubúa en því miður eru hávaxnir Evrópubúar ekki skapaðir fyrir þetta.“ Geir hefur kvartað yfir verkjum í hnjánum og hefur sendiráðsfulltrúi Íslands komið þessum kvörtunum á framfæri við fangelsið.Móðir Geirs biðlar til almennings og þeim sem vilja styrkja fjölskylduna er bent á reikningsnúmer hennar:0565-14-403803kt. 240954 3709
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira