„Staðan er algjörlega óásættanleg fyrir alla aðila“ Ingvar Haraldsson og Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. júní 2014 07:00 Sigurður Ingi Jóhannsson segir tafir á afgreiðslu mála hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála óásættanlegan. vísir/Gva „
Staðan er algjörlega óásættanleg fyrir alla aðila“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson umhverfisráðherra um málshraða hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Samkvæmt lögum skal úrskurðarnefndin úrskurða þremur til sex mánuðum eftir að hún fær málsgögn. Dæmi eru um að bíða hafi þurft úrskurðar í eitt og hálft ár. Nanna Magnúsdóttir, forstöðumaður úrskurðanefndarinnar, segir hátt í tvö hundruð mál bíða afgreiðslu. Nefndin hafi því óskað eftir auknu fjármagni. „Það er bara ákveðinn ómöguleiki fyrir okkur að vinna hraðar án þess að eitthvað annað komi til,“ segir Nanna. Sigurður Ingi stefnir að því að bætt verði úr vandanum. „Við munum leggja fram frumvarp um aukafjárveitingar til úrskurðarnefndarinnar þegar Alþingi kemur saman í haust.“ Einnig verði unnið að skipulagsbreytingum til að auka málshraðann. Ráðherra bætir við að í sumar verði reynt að finna nefndinni fjármagn með því að færa fé milli fjárlagaliða. Óvíst sé hvort það takist. Nanna segir skýringuna á málshraðanum þá að málum hafi fjölgað umfram áætlanir og úrskurðarnefndin hafi verið fáliðaðri en gert var ráð fyrir þegar nefndin var stofnuð 1. janúar 2012. Umhverfisráðherra er ekki einn um að vera óánægður. Í síðustu viku bókaði bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs að það sé „algerlega óásættanlegt að opinber úrskurðarnefnd sjái sér ekki fært að fara að fyrirmælum laga“. Sveitarfélagið hefur kært Orkustofnun vegna álitamála sem tengjast hækkandi vatnshæð í Lagarfljóti vegna Kárahnjúkavirkjunar. „Kærendur hafa að jafnaði ríka hagsmuni af því að fá úrskurði í sínum málum og krefst bæjarráð þess að yfirvöld sjái til þess að lögum verði fylgt í þessu máli sem og öðrum,“ undirstrikar bæjastjórn Fljótsdalshéraðs. Nánar má lesa um málið í Fréttablaðinu í dag.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira