Ringulreið í Sao Paulo vegna verkfalla og mótmæla Randver Kári Randversson skrifar 10. júní 2014 15:51 Starfsmenn neðanjarðarlesta mótmæla í Sao Paulo. Vísir/AP
Mikil truflun varð á samgöngum í fjölmennustu borg Brasilíu í gær þegar starfsmenn neðanjarðarlesta borgarinnar fóru í verkfall og mótmæltu á götum úti. Guardian greinir frá þessu. Þetta var fimmti dagur verkfallsaðgerðanna, sem hófust í síðustu viku og ollu mestu umferðarhnútum í borginni það sem af er þessu ári. Í gær þurfti lögregla að beita táragasi til að leysa upp mótmæli starfsmannanna sem mótmæltu á götum Sao Paulo. Ákveðið var að fresta verkfallinu um tvo daga í gærkvöldi, en það gæti hafist aftur á fimmtudag, á fyrsta degi heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Mikil óánægja hefur verið í Brasilíu undanfarið vegna þess mikla kostnaðar sem hlýst af því að halda heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem hefst nú í vikunni. Andstæðingar keppninnar hafa hafið herferðir á samfélagsmiðlum, verkalýðsfélög hafa boðað til verkfallsaðgerða og skipulögð mótmæli hafa verið í öllum 12 borgunum þar sem keppnin mun fara fram. Því er haldið fram að um ranga forgangsröðun sé að ræða hjá yfirvöldum og að mikil spilling sé í kringum keppnina. Talið er að kostnaður brasilískra yfirvalda vegna heimsmeistarakeppninnar nemi um 11 milljörðum dollara.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira