Hætti rekstri á 30 ára afmæli videoleigunnar Samúel Karl Ólason skrifar 10. nóvember 2014 22:16 "Síðustu fjögur ár hefur leigan minnkað um einhver fimmtíu prósent á ári,“ segir Helgi.
Helgi Sigurðsson hefur hætt rekstri videoleigu sinnar í Sprettur-inn á Akureyri. Hann hætti rekstrinum nákvæmlega 30 árum eftir að hann byrjaði að leigja kvikmyndir. Síðastliðinn laugardag, þann 8. nóvember hóf Helgi sölu á þeim DVD diskum sem hann átti, en Helgi stofnaði leiguna þann 8. nóvember 1984. „Þetta var búið að vera mjög dapurt. Ég ákvað í vor að ná sumrinu og horfði reyndar svolítið til þessarar dagsetningar. Ég ákvað að ef þetta héldi áfram niður á við, eins og hefur verið, að þetta yrði dagurinn,“ segir Helgi í samtali við Vísi. Nú er engin videoleiga á Akureyri að bókasafninu undanskildu, þar sem eitthvað er af kvikmyndum til leigu samkvæmt Helga. „Samkeppnin kemur úr öllum áttum,“ segir hann hlæjandi. Helgi segir leigu kvikmynda hafa minnkað snarlega á undanförnum árum. „Síðustu fjögur ár hefur leigan minnkað um einhver fimmtíu prósent á ári. Samkvæmt tölunum hjá mér er það þannig.“ Þessa þróun segir Helgi að fólk verði að sætta sig við, þrátt fyrir að margir hafi orð á því hve leiðinlegt það sé að videoleigur séu að gefa upp laupana. „Þetta er bara eitthvað sem maður verður að sætta sig við,“ segir Helgi. Í dag kom til hans kona sem keypti af honum DVD disk. Hún hafði orð á því hve leiðinlegt það væri að Helgi væri að hætta rekstri leigunnar. „Ég spurði hvort hún hefði verið að leigja. Svo var ekki. Svona er þetta bara, hún er ekkert ein í því.“ Helgi mun nú einbeita sér að pítsubakstri í Sprett-inum. Þó losni mikið pláss vegna brotthvarfs leigunnar og segir hann að eitthvað muni breytast.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira