Ráðuneyti brjóta á ríkisjarðarleigjanda Garðar Örn Úlfarsson skrifar 11. júní 2014 07:00 Ábúandi ótiltekinnar ríkisjarðar benti á að nýtingarmöguleikar á silungsveiði hefðu verið skertir með banni við netaveiði í ánni á jörðinni sem sé of straumhörð til að koma öðrum veiðiaðferðum við. Fréttablaðið/Vilhelm
Landbúnaðarráðuneytið og fjármálaráðuneytið hækkuðu leigu ríkisjarðar án þess að hafa til þess heimild og stjórnsýslulög eru brotin með því að óskum ábúandans um kaup á jörðinni hefur ekki svarað í meira en átta ár. Ofangreint er álit umboðsmanns Alþingis en þangað kærði ábúandinn stjórnvöld. Þess má geta að allar vísbendingar um hver ábúandinn eða jörðin er hafa verið afmáðar úr áliti umboðsmanns. Bæði embætti umboðsmanns og Jarðadeild fjármálaráðuneytisins neita að upplýsa um hvaða ríkisjörð er að tefla.Ársleigan hækkaði í 54 þúsund krónur Fram kemur að jörðin er leigð samkvæmt byggingarbréfi útgefnu á árinu 1985. Þar er kveðið á um að leigan skuli vera þrjú prósent af fasteignamati. Árið 2011 hækkaði ríkið leiguna úr 22 þúsund krónum á ári í 54 þúsund. Var vísað til þess að leigan væri undir lágmarksviðmiði. Einnig til aukinna hlunninda af heyjum og vaxandi göngu sjóbirtings. Taka ber fram að leigan er eingöngu fyrir jörðina sjálfa en ekki húsakostinn sem ábúandinn á sjálfur. Umboðsmaður sagði ráðuneytið ekki geta hækkað leigu einhliða á grundvelli eigin reglna, grastekja sé ekki hlunnindi og að ekki hafi verið sýnt fram á auknar tekjur af veiði. Hafi ríkið viljað hækkun leigunnar vegna aukinna hlunninda hefði það auðveldlega getað óskað eftir hækkun fasteignamats jarðarinnar. Í samræmi við lög óskaði ábúandinn eftir því árið 2005 að fá jörðina keypta. Sú ósk hefur verið margítrekuð en aldrei verið svarað. Ríkið ber við ágreiningi um landamerki við næstu jörð, sem einnig er ríkisjörð.Hunsa óskir um lögbundinn kauprétt „Lögbundinn réttur A [ábúandans] til að kaupa ábúðarjörð sína er þýðingarlítill ef stjórnvöld draga von úr viti að afgreiða beiðni hennar þar um,“ segir umboðsmaður Alþingis. „Náist ekki sættir um afmörkun jarðanna verður ráðuneytið á endanum að höggva á hnútinn og ákvarða landamerki þeirra jarða sem í hlut eiga að því marki sem það hefur sjálft forræði á þeim ágreiningi og að því marki sem það er nauðsynlegt til að taka ákvörðun um beiðni A um kaup á jörðinni,“ segir í álit umboðsmanns. Hjá Jarðadeildin fengust þau svör að umrætt mál sé einstakt og að álit umboðsmanns hafi því ekki áhrif á leigugjald fyrir aðrar ríkisjarðir.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Fleiri fréttir Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Sjá meira