„Mikill heiður að ná kjöri“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 11. júní 2014 19:15 Tómas H. Heiðar með Grétu Gunnarsdóttur, fastafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum (t.h.) og Maríu Mjöll Jónsdóttur hjá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum (t.v.) „
Ég er mjög ánægður með niðurstöðuna, og það verður að teljast mikill heiður að ná kjöri í eitt af þremur sætum Vesturlanda í dóminum,“ segir Tómas H. Heiðar sem var í dag kjörinn dómari við Alþjóðlega hafréttardóminn á fundi aðildarríkja hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum. Tómas hlaut 124 atkvæði en mótframbjóðandi hans frá Austurríki hlaut þrjátíu atkvæði. Tómas mun taka við dómaraembættinu 1. október næstkomandi og var hann kjörinn til níu ára. Hafréttardómurinn hefur aðsetur í Hamborg í Þýskalandi og er skipaður 21 dómara, þar af þremur frá Vesturlöndum. Tómas með kærustu sinni.Tómas hefur gegnt starfi þjóðréttarfræðings í utanríkisráðuneytinu frá árinu 1996 og er hann jafnframt forstöðumaður Hafréttarstofnunar Íslands. „Ég hef tekið mjög virkan þátt í samningaviðræðum á sviði hafréttar í tuttugu ár og á sviði Sameinuðu þjóðanna og í rauninni fannst mér tímabært að breyta til en halda samt áfram að vinna á sama sviði. Það má því segja að þetta hafi verið rökrétt næsta skref,“ segir Tómas. Eins og fyrr segir mun Tómas taka við embættinu 1.október næstkomandi og lætur þá af störfum í utanríkisráðuneytinu. Hann mun þó áfram gegna starfi forstöðumanns Hafréttarstofnunar Íslands. „Ég hlakka bara til að takast á við þetta verkefni,“ segir Tómas að lokum.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent