Um er að ræða aðila á borð við Dada Life, Edm.com, sem er stærsti vettvangur fyrir raftónlist í dag, og Vital Edm, sem hefur 400.000 áskrifendur á myndbandavefnum Youtube.
„Þetta virkar þannig að þeir spila lagið mitt á sínum miðlum. Þetta er mikil kynning fyrir mig. Þetta kom þannig til að ég hef verið í góðu sambandi við eigendur þessara miðla og þetta hjálpar mér mikið,“ útskýrir Marinó Breki.
Fyrir utan kynninguna á miðlunum er hann kominn í samstarf við ástralska söngkonu sem kallar sig Lele. „Ég er að gera nýtt lag með henni. Hún er þekkt í Ástralíu en meira þekkt í Japan. Hún er bæði fyrirsæta og tónlistarkona og hefur gefið út tónlist í Japan á vegum Universal,“ segir Marinó Breki.
Hann segir samstarfið við hana ganga mjög vel en þau vinna saman í gegnum tölvupósta, Skype og Facebook.
Marinó Breki, sem er fæddur árið 1997, hefur verið að gera fjölbreytta raftónlist í fimm ár og hefur komið víða við. Á seinasta ári fékk hann meðal annars plötu samning við stærsta raftónlistarplötuútgáfufyrirtæki í heiminum, Monstercat.