Af Norðurlöndum drekka Finnar og Íslendingar verst Óli Kristján Ármannsson skrifar 17. maí 2014 07:00 Ekki fer alltaf saman magn og "gæði“ drykkju að því er fram kemur í nýrri könnun. Ítalir og Hollendingar drekka "vel“, en Íslendingar og Finnar "illa“. Nordicphotos/AFP
Af Norðurlandabúum drekka Finnar mest og Íslendingar minnst að því er fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um áfengi og heilbrigði í heiminum. Fram kemur í skýrslunni, sem nær til allra 194 aðildarríkja WHO, að áfengisnotkun valdi dauða 3,3 milljóna manna á ári hverju. Af öllum dauðsföllum er hlutfallið 5,9 prósent. Auk þess að stuðla að ótímabærum dauða er áfengi sagt auka líkur á að fólk þrói með sér yfir 200 sjúkdóma. Hvorki Ísland né Finnland ná þó á topp tíu lista þeirra landa þar sem mest er drukkið í heiminum, en þar tróna þó Evrópulönd, því mest er drukkið í Evrópu. Mest er drukkið í Hvíta-Rússlandi, 17,5 lítrar af hreinu áfengi per íbúa yfir 15 ára aldri á ári hverju. Þar á eftir koma Moldóva með 16,8 lítra, Litháen (15,4 lítrar) og Rússland (15,1 lítri). Hér á landi er talan 7,1 lítri af hreinu áfengi per íbúa á ári, en 10,4 lítrar ef bara er horft til þeirra sem drekka á annað borð. Finnar drekka 12,3 lítra af áfengi á mann (18,1 þeir sem drekka), Danir 11,4/12,9 lítra, Svíar 9,2/13,3 lítra, og Norðmenn 7,7/9,0 lítra á mann. En þar með er þó ekki öll sagan sögð, því WHO mælir líka hversu "vel" er drukkið. Hér er hlutfall óhófsdrykkju, eða það sem á ensku kallast binge drinking, þar sem mikið af áfengi er innbyrt á tiltölulega skömmum tíma, næstmest á Norðurlöndum.Hér að ofan má sjá lista yfir 25 efstu lönd raðað eftir óhófsdrykkju þeirra sem á annað borð drekka. Allra verst í heimi drekka Litháar, en 56,1 prósent þeirra sem þar drekka á annað borð drekka illa. Í öðru sæti er Finnland þar sem hlutfallið er 53,7 prósent. Af aðildarríkjum WHO er Ísland svo í þrettánda sæti hvað þetta varðar með hlutfallið 34,9 prósent. Í Svíþjóð sem er í 14. sæti er hlutfallið 34,5 prósent og 33,4 í Bretlandi sem er í því fimmtánda. Danmörk situr svo í 19. sæti á þessum skammarlista með 32,2 prósenta óhófsdrykkjuhlutfall þeirra sem á annað borð drekka. Best Norðurlandabúa standa svo Norðmenn sig með hlutfallið 13,9 prósent, nálægt fertugasta sæti. Til samanburðar má svo nefna að óhófsdrykkjuhlutfall þeirra Bandaríkjamanna sem á annað borð drekka er 24,5 prósent. Sama hlutfall er 17,3 prósent í Kína, 13,0 prósent í Ástralíu og 23,1 prósent í Kanada. Af þjóðum Vestur-Evrópu hafa Ítalir og Hollendingar allra besta stjórn á drykkju sinni samkvæmt tölum WHO. Í Hollandi er hlutfall óhófsdrykkjufólks í hópi þeirra sem drekka 6,6 prósent og 6,2 prósent á Ítalíu.
Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Vill breyta lögum um .is Innlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Fleiri fréttir Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Sjá meira