Vonsvikin börn í Smáralind: Lína langsokkur mætti ekki á litlu jólin Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. nóvember 2014 09:00 Börnin biðu spennt við sviðið í Smáralind í gær en misskilningur olli því að Lína kom ekki. Vísir
Fjölmörg börn biðu spennt eftir Línu langsokk í Smáralind í gær en auglýst hafði verið að hún myndi skemmta þar á litlu jólunum klukkan 18. Misskilningur olli því hins vegar að Lína mætti ekki. „Ég einfaldlega hélt að þetta væri klukkan 20. Þetta var því bara leiðinlegur misskilningur. Ég var búin að bíða eftir þessu allan daginn og hlakkaði mikið til. Mér þykir þetta því alveg ömurlega leiðinlegt allt saman,“ segir Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem leikur Línu langsokk, í samtali við Vísi. Hún segist vonast til að geta komið sem fyrst í Smáralind til að bæta börnunum þetta upp. Guðrún Margrét Örnólfsdóttir, markaðsstjóri Smáralindar, tekur undir með Ágústu Evu og segir leiðinlegt að þessi misskilningur hafi komið upp. „Þetta er nú ekki hennar stíll og henni og okkur finnst auðvitað alveg svakalega leiðinlegt að þetta skuli hafa komið upp á,“ segir Guðrún í samtali við Vísi. „Okkur þykir mjög leiðinlegt að einhverjir gestir okkar hafi jafnvel gert sér sérstaka ferð í húsið og farið þar af leiðandi fýluferð," bætir Guðrún við. Foreldrar og börn fengu ekki að vita hvers vegna Lína kom ekki en þeim var tilkynnt klukkan 18:15 að ekkert yrði af skemmtuninni. Guðrún segist ekki hafa náð í Ágústu Evu og því einfaldlega ekki vitað hvað hafði komið upp á henni. Hún hafi því ekki getað gefið börnum og foreldrum neinar skýringar. Guðrún segir ekki liggja fyrir hvenær að Lína muni koma í Smáralind en farið verði í það á næstu dögum að finna tíma sem hentar. „Við hlökkum bara til að sjá sem flesta þá.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira