Strætóbílstjóri í spjaldtölvu undir stýri Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. maí 2014 11:06 Á myndinni sést greinilega hvernig vagnstjórinn notar spjaldtölvuna í miðjum akstri. Kolbeinn segir málið litið alvarlegum augum. MYND/SYLVÍA HALL
Farþegum strætisvagnsins sem ók leið 11 á föstudagskvöld var brugðið þegar þeir sáu að vagnstjórinn lék sér í spjaldtölvu á meðan hann ók vagninum. Bílstjóranum gæti verið vikið úr starfi vegna málsins segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, upplýsingafulltrúi Strætó bs.Átti athygli hans alla„Hann leit ekki upp af tækinu frá því að hann tók af stað úr Mjóddinni og alveg niður að Sprengisandi,“ segir Sylvía Hall, einn farþeganna. Sylvía vakti athygli á málinu og setti mynd af vagnstjóranum inn á Facebook-síðu Strætó, sem má sjá hér að ofan. Á myndinni sést greinilega hvernig vagnstjórinn tekur augun af veginum til að lesa af skjá tækisins. Sylvía segir að aðrir farþegar hafi rekið augun í þetta og fólki hafi ekki staðið á sama. Leið 11 ekur frá Mjódd út á Seltjarnarnes.Með öllu ólíðandiKolbeinn Óttarsson Proppé, upplýsingafulltrúi Strætó bs. segir þetta athæfi vagnstjórans með öllu ólíðandi. „Við hjá Strætó hörmum þetta atvik og lítum þetta mjög alvarlegum augum,“ segir Kolbeinn í samtali við Vísi. Hann bætir við að vagnstjórinn sem á í hlut verður nú kallaður fyrir og farið verður yfir málið með honum. „Þetta er skýrt brot á starfsreglum fyrirtækisins og almennum umferðarlögum og tilefni til áminningar – jafnvel brottrekstur,“ segir Kolbeinn. Í kjölfar myndbirtingarinnar mun Strætó bs. nýta tækifærið til að fara yfir öryggismál fyrirtækisins og vill Kolbeinn þakka athugulum farþegum fyrir að benda á athæfi sem þetta.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira