10.600 vefsíðum lokað í tengslum við sölu á ólöglegum lyfjum Stefán Árni Pálsson skrifar 26. maí 2014 14:51 Embætti Tollstjóra og Lyfjastofnun tóku sameiginlega þátt í aðgerðinni. mynd/tollstjórinn
Þrjú mál komu upp nýlega hér á landi í alþjóðlegri aðgerð gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum sem seld eru á netinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti Tollstjóra. Embætti Tollstjóra og Lyfjastofnun tóku sameiginlega þátt í aðgerðinni og stóð hún yfir í eina viku. „Það er ekkert hægt að segja um þau mál sem komu upp hér á landi að svo stöddu,“ segir Snorri Olsen, Tollstjóri, í samtali við Vísi en hann staðfesti að rannsókn stæði yfir. Aðgerðin „Pangea VII" var á vegum WCO (World Customs Organisation) og kom Interpol að henni. Markmið aðgerðarinnar var að uppræta glæpastarfsemi á sölu á umræddum lyfjum. Um er að ræða stærstu alþjóðlegu aðgerð gegn sölu ólöglegra lyfja, sem framkvæmd hefur verið til þessa. Nær 200 stofnanir í 111 löndum tóku þátt í henni og voru 237 handteknir í fjölmörgum löndum. Meðal þeirra 9.4 milljóna sendinga af fölsuðum og ólöglegum lyfjum, sem haldlögð voru í aðgerðinni voru megrunarlyf, krabbameinslyf, malaríulyf, og stinningarlyf. Þau voru að andvirði um 36 milljónir dollara. Upp komu 1.235 mál, sem eru til rannsóknar hjá viðkomandi lögregluyfirvöldum, meira en 19.000 auglýsingar á ólöglegum lyfjum voru fjarlægðar og rúmlega 10.600 vefsíðum var lokað. Talið er að stór hluti þeirra lyfja sem seld eru í gegnum netið séu fölsuð en þau geta verið stórhættuleg. Til að blekkja kaupandann hvað varðar útlit og áhrif er í sumum tilfellum notuð efni eins og götumálning, lakk, amfetamín og morfín. Fyrir utan stinningarlyf er algengt að grenningarlyf, fúkkalyf og lyf gegn kólesteróli séu fölsuð.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira