Þór segir skilið við Dögun Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2014 12:02 Þór Saari sat á þingi fyrir Borgarahreyfinguna og síðar Hreyfinguna á árunum 2009 til 2013. Vísir/GVA
Þór Saari, fyrrum þingmaður Hreyfingarinnar, segist ekki lengur eiga samleið með Dögun og hafi því ákveðið að segja sig úr flokknum. Í tilkynningu frá Þór segir að í kjölfar landsfundar Dögunar nú um helgina og þróunar Dögunar sem stjórnmálaafls frá kosningunum 2013 sé ljóst að hann eigi ekki lengur samleið með Dögun og þeirri stefnu sem tekin hefur verið á nýliðnum landsfundi og aukalandsfundi Dögunar í nóvember 2013. „Í Dögun er baráttuglatt og kjarkmikið fólk með hjartað á réttum stað og ég óska félögum mínum alls hins besta á þeirra vettvangi. Íslenskt samfélag og íslenskt stjórnmálaumhverfi er í mjög flókinni og erfiðri stöðu sem nauðsynlegt er að komast úr sem fyrst. Lausn á þeirri stöðu þarf hins vegar að vera róttæk og afgerandi og hvorki Dögun né önnur hefðbundin stjórnmálaöfl innan Fjórflokksins eru fær um að leysa þann vanda. Hvort og þá hvernig vandinn verður leystur er ekki gott að segja en augljóst er að sá rammi sem nú er utan um íslensk stjórnmál dugar ekki og löggjafarvaldið, þ.e. Alþingi og sú lýðræðisskipan sem við búum við eru úr sér gengin og í algeru öngstræti. Við búum einnig á miklum óvissutímum í efnahagsmálum og vandaðra langtíma lausna er einnig þörf þar. Núverandi stjórnvöld hafa sýnt sig vera ófær um að gæta að almannahagsmunum og munu ekki leiða Ísland úr ógöngunum. Öflugt andóf gegn núverandi ástandi er því eina leiðin til betra samfélags,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira