
Framlög til lista lækka um 346 milljónir

Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpinu sem dreift var á Alþingi í dag.
Í frumvarpinu segir að gert sé ráð fyrir að framlag til meðal annars Bókasafnssjóðs, Starfsemi áhugaleikfélaga og Barnamenningarsjóðs, verði lækkað um samtals 61,6 milljónir króna til að mæta markmiðum um aðhald í útgjaldaramma ráðuneytisins.
47 milljóna króna tímabundið framlag til Feneyjatvíæringsins í myndlist í ár, verkefnisins Tónlist fyrir alla, Íslensku óperunnar og Listahátíðar Reykjavíkur, fellur niður.
Þá verður lagt til að veitt verði 12 milljón króna tímabundið framlag í tvö ár vegna þátttöku Íslands í Fenyjatvíæringnum árið 2015.
Lang stærsti liðurinn í þessum flokki er stefna ríkisstjórnarinnar um að falla frá áformum um 250 milljóna króna hækkun framlags sem veitt var í síðustu fjárlögum, og var liður í svonefndri fjárfestingaáætlun fyrir árin 2013 til 2015.
Framlagið átti að skiptast á Útflutningssjóð íslenskrar tónlistar (20 milljónir), Myndlistasjóð (45 milljónir), Hönnunarsjóð (45 milljónir) Handverkssjóð(15 milljónir), Bókasafnssjóð höfunda (20 milljónir), Miðstöð íslenskra bókmennta (50 milljónir), Starfsemi atvinnuleikhópa (20 milljónir) og Tónlistarsjóð (35 milljónir).
Þá verða einnig Styrkir á sviði listgreina lækkaðir um 30 milljónir króna á milli ára, þannig að gert er ráð fyrir að 34,6 milljónir verði eftir til úthlutunar styrkjum.
Tengdar fréttir

Landspítalinn fær enga innspýtingu - fé til tækjakaupa skorið niður
Tímabundið 600 milljóna króna framlag til spítalans vegna tækjakaupa er fellt niður. Hagræðingarkrafa á spítalann felur í sér hækkun á sértekjum sem verður náð með nýju legugjaldi. Um er að ræða nýtt gjald þar sem sjúklingar greiða 1.200 krónur fyrir hvern sólarhring sem þeir dvelja á Landspítalanum. Með þessu nýja gjaldi er spítalanum reiknaðar um 200 milljónir í sértekjur.

Framlög til Kvikmyndamiðstöðvar lækka um 400 milljónir króna
Kvikmyndamiðstöð Íslands fær 735 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu en í fjárlögum þessa árs var upphæðin 1,1 milljarður króna.

Stefna á hallalaus fjárlög
Gert er ráð fyrir því að ríkissjóður skili tæplega 500 milljón króna afgangi á næsta ári miðað við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þetta eru fyrstu hallalausu fjárlögin frá hruni.

Kaldar kveðjur í fjárlögum
Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir fjárlögin sýna forgangsröðun nýrrar ríkisstjórnar.

Barna- og vaxtabætur lækka
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er áætlað að barnabætur á næsta ári verði 10.2 milljarðar króna en á í fjárlögum þessa árs voru þær tæpir 10.8 milljarðar króna.

Tóbak og áfengi hækka í verði
Tóbaksgjald og gjald á áfengi verður hækkað, samkvæmt lagabreytingu sem verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku.

Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni sameinaðar
Kristján Már Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni verði sameinaðar. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014. Eftir sameiningu stofnana verður ein stofnun í hverju heilbrigðisumdæmi, eins og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir. Þetta á við um Norðurland, Suðurland og Vestfirði.

Fjárlögin verða kynnt í dag
Mikil spenna ríkir fyrir fjárlögunum enda staða ríkissjóðs afar erfið.

Milljónir í eflingu löggæslu
Gert er ráð fyrir 500 milljón króna viðvarandi framlagi til að efla löggæsluna í landinu. Á sama tíma er gert ráð fyrir að 200 milljón króna framlag sem veitt var tímabundið til löggæslumála í fjárlögum 2013 verði fellt niður.

Framkvæmdum við Hús íslenskra fræða hætt
Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að tímabundin fjárheimild, 800 milljónir króna falli niður.

Tekjuskattur lækkar
Skatthlutfallið í miðþrepi tekjuskatts verður lækkað um 0,8 prósentustig samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Skatthlutfallið lækkar úr 25,8% í 25%.

Skólagjöld hækka um 25 prósent
Framlag íslenska ríkisins til Háskóla Íslands á næsta ári lækkar um 321,8 milljónir króna og skólagjöld verða hækkuð úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur í öllum ríkisreknum háskólum.

Bleyjuskattur lækkaður
Fæðingarorlof stytt en greiðslur hækkaðar

Hætt við stækkun FSU
Heildarfjárveiting íslenska ríkisins til framhaldsskóla á Íslandi lækkar um rúmlega 1,5 milljarð króna í fjárlögum síðasta árs. Þar af eru almennar launa- og verðlagsbreytingar 645 milljónir króna.

RÚV fær 319 milljónir aukalega - ekki farið fram á hagræðingu
Fjárveiting til Ríkisútvarpsins hækkar um 319 milljónir króna, og verður því heildarframlag ríkisins til RÚV rúmir 3,5 milljarðar króna, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var á Alþingi klukkan fjögur.

100 milljónir til hönnunar sjúkrahótels
Nýr Landspítali er ekki fyrirferðarmikill í nýju frumvarpi til fjárlaga. Til hans eru lagðar 100 milljónir króna til fullnaðarhönnunar á sjúkrahóteli.