Innlent

Mynda­syrpa: Nýr skáli fluttur í Þórs­mörk

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Nýr Skagfjörðsskáli í Langadal í Þórsmörk
Nýr Skagfjörðsskáli í Langadal í Þórsmörk Vísir/Vilhelm

Eftir að Skagfjörðsskáli í Langadal í Þórsmörk var jafnaður við jörðu í september er hafin vinna við að flytja nýjan skála í hlutum.

Búið er að flytja fyrsta og stærsta hlutann upp í Þórsmörk en um er að ræða heljarinnar verk. Stærsti hlutinn er um 22 tonn að þyngd en ekki var hægt að flytja alla hluta skálans í einu. 

Húsin voru flutt frá Selfossi í gær með lögreglufylgd og var þjóðveginum lokað um tíma. Einingarnar eru um sjö metrar á breidd og tóku því yfir tvær akgreinar. Hinir hlutarnir bíða neðar á veginum þar sem ekki er hægt að flytja þá alla í einu alla leið. Stefnt er að því að klára að setja skálann upp í dag.

„Það gengur rosalega vel. Við erum búnir að setja niður þrjár einingar af sex og erum að fara í þessum töluðu orðum að rífa fyrstu þakeiningu á húsið,“ segir Stefán Jökull Jakobsson, yfirskálavörður hjá Ferðafélagi Íslands.

Allt hafi gengið slysalaust fyrir sig en tekur Stefán fram að það sé ekki sjálfgefið að flytja svona stórar húsaeiningar yfir vöðin og árnar. 

„Þetta er ekki hrist fram úr erminni.“

Þá verður lögð lokahönd á innbú skálans í vor og hann vígður þann 17. júní á hundrað ára afmæli Ferðafélags Íslands.

Gamli Skagfjörðsskálinn var byggður árið 1954 og var svo bætt við hann á áttunda áratugnum. Býsna margt var orðið gamalt og lúið í skálanum og taldi Ferðafélag Íslands, sem á skálann, tíma til kominn að ráðast í endurnýjun.

Sjá nánar: „Við höldum í fjallarómantíkina“

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, náði þessum myndum af flutningunum.

Skálinn var fluttur í nokkrum hlutum.Vísir/Vilhelm
Þyngsti hlutinn er um 22 tonn.Vísir/Vilhelm
Það er ekki það auðveldasta að flytja heilan skála inn í Þórsmörk.Vísir/Vilhelm
Til stendur að vígja nýja skálann 17. júní 2027.Vísir/Vilhelm
Alls konar vinnuvélar þarf til að setja skálann saman.Vísir/Vilhelm

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×