Arsenal, Dortmund, Schalke, AC Milan og Zenit tryggðu sér öll í kvöld sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Chelsea, Barcelona og Atlético Madrid voru þegar búin að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni fyrir leiki kvöldsins.
Neymar fór á kostum í 6-0 sigri Barcelona á Celtic í kvöld en leikurinn skipti litlu máli enda Barcelona komið áfram og Celtic úr leik. Neymar skoraði þrjú markanna og lagði upp eitt.
Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax voru manni fleiri í 68 mínútur á móti AC Milan á San Siro en tókst ekki að skora markið sem hefði komið þeim áfram í sextán liða úrslitin. Kolbeinn kom inn á sem varamaður á 73. mínútu.
Kevin Grosskreutz var hetja Borussia Dortmund þegar hann skoraði sigurmarkið á móti Marseille. Markið tryggði Dortmund 2-1 sigur og sæti í sextán liða úrslitunum á kostnað Napoli auk þess að þýska liðið tryggði sér sigur í riðlinum af því að Arsenal tapaði sínum leik.
Napoli vann 2-0 heimasigur á Arsenal á sama tíma þökk sé mörkum Gonzalo Higuaín og José Mária Callejón en það var ekki nóg. Öll þrjú liðin enduðu með jafnmörg stig en Arsenal og Borussia Dortmund komust með bestan árangur í innbyrðisleikjum liðanna þriggja. Napoli vantaði bara eitt mark í viðbót.
Chelsea vann E-riðilinn eftir 1-0 sigur á Steaua Búkarest en sigurmarkið var sjálfsmark Rúmenanna sem kom strax á tíundu mínútu leiksins. Schalke komst áfram eftir 2-0 heimasigur á Basel.
Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld:
E-riðill
Chelsea - Steaua Búkarest 1-0
1-0 Sjálfsmark (10.)
Schalke 04 - Basel 2-0
1-0 Julian Draxler (51.), 2-0 Joel Matip (57.)
F-riðill
Napoli - Arsenal 2-0
1-0 Gonzalo Higuaín (73.), 2-0 José Mária Callejón (90.+3).
Marseille - Borussia Dortmund 1-2
0-1 Robert Lewandowski (4.), 1-1 Souleymane Diawara (14.), 1-2 Kevin Grosskreutz (87.)
G-riðill
Atlético Madrid - Porto 2-0
1-0 Raúl García (14.), 2-0 Diego Costa (37.)
Austria Wien - Zenit St. Petersburg 4-1
0-1 Aleksandr Kerzhakov (35.), 1-1 Philipp Hosiner (44.), 2-1 Tomáš Jun (48.), 3-1 Philipp Hosiner (51.), 4-1 Roman Kienast (90.).
H-riðill
AC Milan - Ajax 0-0
Barcelona - Celtic 6-1
1-0 Gerard Piqué (7.), 2-0 Pedro (40.), 3-0 Neymar Jr. (45.), 4-0 Neymar Jr.. (48.), 5-0 Neymar Jr.. (58.), 6-0 Cristian Tello (72.), 6-1 Georgios Samaras (88.)
Lokastöðurnar í riðlunum:
E-riðill
Chelsea 12
Schalke 10
Basel 8
Steaua Búkarest 3
F-riðill
Dortmund 12
Arsenal 12
Napólí 12
Marseille 0
G-riðill
Atletico Madrid 16
Zenit 6
Porto 5
Austria Vín 5
H-riðill
Barcelona 13
AC Milan 9
Ajax 8
Celtic 3
