Hjúkrunarrýmum fjölgað á Sólvangi 5. apríl 2013 16:41
Þjónusta við aldraða í Hafnarfirði verður aukin með fjölgun hjúkrunarrýma og nýjum dagvistarrýmum á hjúkrunarheimilinu Sólvangi samkvæmt tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. Þetta er liður í aðgerðum til að bæta rekstrarstöðu heimilisins sem nokkur pólitískur styr hefur staðið um í gegnum tíðina.Jafnframt mun heimilið afla aukinna sértekna og hagrætt verður í rekstri að því er fram kemur í tilkynningu. Svo segir í tilkynningu ráðuneytisins: Fulltrúar velferðarráðuneytisins og stjórnendur Sólvangs í Hafnarfirði hafa að undanförnu unnið að gerð áætlunar til að snúa við miklum og viðvarandi halla sem verið hefur á rekstri hjúkrunarheimilisins. Niðurstöður þeirrar hafa verið kynntar fyrir starfsmönnum Sólvangs og voru kynntar fulltrúum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í dag. Sólvangur fær heimild fyrir þremur nýjum hjúkrunarrýmum, tvö þeirra ætluð fyrir hvíldarinnlagnir og eitt til varanlegrar dvalar. Jafnframt verður opnuð dagdvöl fyrir átta aldraðra einstaklinga. Þá mun heimilið taka að sér matsölu til aldraðra í þjónustumiðstöðinni Höfn og afla þannig sértekna. Sýnt hefur verið fram á að húsnæðiskostnaður Sólvangs hefur verið vanmetin og mun velferðarráðuneytið taka tillit til þess með viðbótarfjárheimildum. Starfsmannahald á Sólvangi hefur verið endurmetið. Niðurstöður sýna að mönnun á heimilinu hefur verið töluvert yfir meðaltali mönnunar á sambærilegum stofnunum og í því ljósi hefur stöðugildum verið fækkað um fjögur og hálft. Nýtt hjúkrunarheimili á Völlunum Velferðarráðuneytið og Hafnarfjarðarkaupstaður gerðu með sér samkomulag árið 2010 um byggingu nýs 60 rýma hjúkrunarheimilis í Skarðshlíð samkvæmt svokallaðri leiguleið og er því ætlað að leysa af hólmi reksturinn á Sólvangi. Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að heimilið yrði tekið í notkun á þessu ári en ljóst er að þau áform ganga ekki eftir. Undirbúningur vegna fyrirhugaðra framkvæmda stendur yfir af hálfu bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. Velferðarráðuneytið og bæjaryfirvöld eru einhuga um mikilvægi þess að grípa til ráðstafana á Sólvangi til að rétta af rekstur heimilisins og auka þjónustu við aldraða í bæjarfélaginu en leggja áherslu á að þetta eru tímabundnar ráðstafanir þar til nýtt hjúkrunarheimili verður tekið í notkun. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og velferðarráðuneytisins í dag kom fram ósk bæjaryfirvalda um að við uppbyggingu í Skarðshlíð verði byggt stærra hjúkrunarheimili en áformað er samkvæmt gildandi áætlun. Ráðuneytið telur góð rök fyrir því að endurmeta fyrirhugaðar framkvæmdir með mögulega fjölgun rýma að leiðarljósi til að efla þjónustu við aldraða á svæðinu.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira