Laddi: "Hemma verður sárt saknað" KH skrifar 5. júní 2013 12:15 Hemmi og Laddi á góðri stundu. Elsa Lund, sem Laddi lék með eftirminnilegum hætti í þáttunum hans Hemma, er ein skrautlegasta persóna sem birst hefur í íelsnku sjónvarpi. "
Ég á eftir að sakna hans ótrúlega mikið. Þetta er algjört reiðarslag. Ég er ekki búinn að átta mig á þessu ennþá. Þetta er svo ótrúlegt," segir Þórhallur Sigurðsson leikari, betur þekktur sem Laddi, um fráfall Hermanns Gunnarssonar. Laddi og Hemmi Gunn voru nánir vinir en leiðir þeirra lágu fyrst saman í sjónvarpinu fyrir um 30 árum þegar þátturinn Á tali með Hemma hóf göngu sína. Þátturinn er vinsælasti þáttur sem gengið hefur í íslensku sjónvarpi en þar urðu persónur á borð við Dengsa og Elsu Lund til, sem Laddi túlkaði með eftirminnilegum hætti. "Ég kem til með að sakna hans alveg rosalega - að heyra ekki í honum og hlátrinum hans. Ég á eftir að sakna þess að koma ekki í útvarpið til hans. Hann lét ekki bara duga að tala við mig þegar ég kom í heimsókn heldur alla karakterana. Það var hlegið alveg út í eitt," segir Laddi. "Ég held að öll þjóðin eigi eftir að sakna hans enda var hann afskaplega góður drengur og vildi alltaf gera öllum gott. Hann vildi alltaf hjálpa minnimáttar og hann var með eitt stærsta hjarta sem ég hef kynnst." Laddi kom fram í síðasta þætti Hemma á Bylgjunni þann 22. apríl síðast liðinn. "Ég var í síðasta þættinum hans á Bylgjunni en síðan fór hann út til að leggja lokahönd á bókina sína," segir Laddi. "Hemma er sárt saknað meðal allra vina hans og ég myndi halda með þjóðinni allri." Í meðfylgjandi hljóðbroti má heyra þegar Laddi heimsótti Hemma í síðasta þáttinn hans á Bylgjunni.
Mest lesið Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent „Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Veður Fleiri fréttir Snjóflóð féllu á Vestfjörðum og Tröllaskaga Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Sjá meira