"Hér er erfitt að spila golf" 23. mars 2013 14:13
Bragi Benediktsson, bóndi á Grímsstöðum, segir að þegar hótel rísi á Grímsstöðum á Fjöllum verði hann farinn yfir móðuna miklu. Bragi er meðal íslenskra viðmælenda í úttekt New York Times á áhuga Huang Nubo á Grímsstöðum. Tekið er hús á Braga á heimavelli á Grímsstöðum þar sem allt er þakið snjó. Þannig séu aðstæður frá september og líklega fram í maí. Jafnvel fyrir Íslendinga sem öllu séu vanir séu Grímsstaðir sérstaklega einangraður staður segir í greininni. Össur Skarhéðinsson utanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Hjörleifur Sveinbjörnsson, vinur Hugan Nubo, ræða einnig við bandaríska miðilinn. Ögmundur segist hafa spurt Nubo fjölmargra spurninga varðandi áform sín en engin svör fengið. „Viðskipaáætlunin virkaði aldrei mjög trúverðug," segir Ögmundur um tilætlanir Nubo að byggja vistvænt fimm stjörnu hótel með glæsilegum golfvelli. Ögmundur setur spurningamerki við plön Nubo. „Maður verður að horfa á málið frá landfræðilegum og pólitískum vinkli og velta ástæðunum fyrir sér," segir Ögmundur. Össur segist ekki hafa neitt við byggingu hótels að athuga. Hann sé þó hugsi yfir ástæðum þess að Nubo velji svo einangraðan stað vil þess að fjárfesta í. „Maður getur því sem næst heyrt drauga dansa í snjónum," segir Össur sem skilur heldur ekkert í golfáætlunum Nubo. Í greininni er velt upp mögulegum ástæðum þess að Kínverjar vilji fjárfesta hér á landi. Staðurinn sé nærri íslenskum fjörðum nærri olíuleitarsvæðum. Þá er minnt á siglingarleið sem reikna má með að opnist norðan Íslands í framtíðinni. Þá er minnst á orðróm að hermenn gætu dulbúist sem kylfusveinar til þess að komast inn í landið. Össur segir Íslendinga vel meðvitaða um áhuga Kínverja á siglingaleið norðan landsins og að hafa starfstöð á Íslandi. Sögusagnir um áætlanir Nubo hafi hins vegar aðeins skaðað þau markmið Kínverja. Hjörleifur Sveinbjörnsson, sem var skólabróðir Nubo á áttunda áratugnum, segir að Nubo hefði líkast til aldrei heyrt af Íslandi hefðu þeir ekki deilt herbergi saman í háskóla í Peking. Þótt hugmyndir Nubo virki að einhverra mati undarlegar sé Nubo ekki vitlaus maður að sögn Hjörleifs. Hjörleifur segir að Grímsstaðir séu ekki fyrsti staður sem hann hefði valið til þess að fjárfesta í hér á landi. Þá er minnst er á fjárframlag Nubo til menningarsjóðs Íslands og Kína upp á 120 milljónir íslenskra króna.Viðtalið í heild sinni má lesa á vefsíðu New York Times.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Sjá meira