Innlent

Áður vandamál með lendingarbúnað

Rannsóknarnefnd samgöngumála hefur hafið rannsókn á óhappi á Keflavíkurflugvelli í morgun þar sem rússnesk þota magalenti. Grunur leikur á að lendingarbúnaður vélarinnar hafi verið bilaður. Vélin er stórskemmd, ef ekki ónýt.

Tilkynning um óhappið barst frá neyðarlínu klukkan hálf sex í morgun. Þar kom fram að flugvél hefði hlekkst á við lendingu með sjö manns um borð. Samkvæmt flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll var lýst gulu neyðarstigi lýst yfir í kjölfarið en það á við þegar fleiri en fimm manns eru um borð.

Í takt við aðgerðaráætlun voru ýmsar starfsstöðvar og stofnanir virkjaðar eða allar stofnanir ISAVIA, sem annast rekstur og uppbyggingu flugvalla á Íslandi, ásamt lögreglu, slökkviliði, björgunarsveitum og Rauða Krossinum.

Skúli Jónsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum og aðgerðarstjóri.

„Það voru fimm manns um borð og fjórir reyndust ómeiddir, en einn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með áverka á fæti. Það bendir allt til þess að hann sé ökklabrotinn og hann hefur verið fluttur í aðgerð á Landspítalanum í Reykjavík.“

Þegar atvik sem þessi eiga sér stað er rannsóknarnefnd samgögnumála kölluð til sem og rannsóknarsveit lögreglustjórans á Suðurnesjum. Skúli ítrekar að vettvangsrannsókn á Keflavíkurflugvelli standi enn yfir. Það liggur þó fyrir að lendingabúnaður vélarinnar fór ekki niður að aftanverðu. Vélin situr því enn sem föstust á flugbrautinni og er nokkuð löskuð.

„Þessa stundina er unnið að rannsókn á vettvangi. Þarna eru aðilar frá rannsóknarnefnd samgöngumála og rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurnesjunum. Verið er að ræða við áhöfnina og reyna að komast að því hvað þarna gerðist. Það er algjörlega ótímabært að vera að fjalla um það núna hvað olli þessu slysi. Þessi flugvél er búin að vera hér síðasta mánuð við tilrauna- og æfingaflug á Keflavíkurflugvelli á vegum framleiðanda vélarinnar.“

Rússneska flugvélin hafði verið við æfingar í nótt en Keflavíkurflugvöll þykir heppilegur staður til að æfa erfiðar lendingar, þar sem hliðarvindur er mikill.

Áætlunarflug heldur áfram óraskað á Keflavíkurflugvelli í dag. Skúli segir að flugbraut 11-29, þar sem óhappið átti sér stað, verði lokuð þangað til klukkan fjögur á morgun.

Áður bilun í lendingarbúnaði

Framleiðandi flugvéla af sömu tegund hefur áður þurft að bregðast við bilun í lendingarbúnað á vélum sínum. Í fyrra var tilkynnt gera þyrfti við lendingarbúnað allra farþegaþota af gerðinni Sukhoi Super-jet 100. Þá höfðu sjö flugvélar verið framleiddar frá því sú fyrsta leit dagsins ljós, árið 2007. Það er rússneska fyrirtækið Sukhoi sem er framleiðandi og eigandi vélarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×