Hemmi verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju Jakob Bjarnar skrifar 13. júní 2013 16:24 Hermann og dætur hans fjórar. Egill Eðvarðsson mun stjórna jarðarförinni en séra Pálmi Matthíasson jarðsyngur. „
Við áttum okkur á því að Hemmi Gunn var sameign þjóðarinnar. Ljósberi og mannvinur," segir Sigrún Hermannsdóttir, dóttir hins ástsæla Hermanns Gunnarssonar sem varð bráðkvaddur í Tælandi 4. júní. Útförin verður ekki í beinni útsendingu, eins og nefnt var sem hugmynd fljótlega eftir að fréttist af andláti Hemma, né gerð frá Hlíðarenda, en sjónvarpsvélar verða leyfðar við athöfnina. Gert verður ráð fyrir því að mikill fjöldi muni vilja fylgja Hermanni Gunnarssyni til grafar og verður skjám og hljóðkerfi komið fyrir við kirkjuna. Vonir standa til að almættið verði með í liði og sjái til þess að veður verði skaplegt. Gera má ráð fyrir miklum mannfjölda á Skólavörðuholtinu, sem votta vill Hemma virðingu sína en hann var með eindæmum vinsæll og vinamargur maður. Gríðarlegt umstang fylgir því að koma líki til landsins, ekki síst frá Tælandi og hefur því fylgt mikil pappírsvinna auk óvissu um hvenær kistan kemur til landsins. Þetta hefur sett afkomendur Hemma í nokkurn vanda við skipulagningu jarðarfararinnar, til dæmis er varðar allar tímasetningar. Stefnt er að því að jarðarförin fari fram í lok mánaðarins. Hins vegar hafa ættingjarnir ákveðið ýmislegt er varðar sjálfa athöfnina. Einn helsti vinur Hemma, Egill Eðvarðsson framleiðandi, mun stjórna athöfninni; velja tónlistaratriði og fleira í þeim dúr en séra Pálmi Matthíasson, einnig mikill vinur hins látna, mun jarðsyngja. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju. „Við viljum leyfa fólki að fylgjast með," segir Sigrún. Hún segir að þau börnin séu afskaplega þakklát fyrir þann mikla hlýhug sem þau hafa fundið í kjölfar fráfallsins og auðsýnda samúð. Það hefur reynst mikill stuðningur. Þau vilja koma sérstaklega á framfæri þökkum fyrir það. Því hefur verið ákveðið að sjónvarpsmyndavélar verði leyfðar við sjálfa athöfnina þó hún verði ekki í beinni útsendingu. Sérstakur viðauki verður við fréttatíma Ríkissjónvarpsins á jarðarfarardag, auk þess sem þá um kvöldið verður á dagskrá sérstakur minningarþáttur, sem Egill hefur umsjá með.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira