Lukaku spillti kveðjustund Sir Alex Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. maí 2013 12:17 Lukaku fagnar jöfnunarmarki sínu. Nordicphotos/Getty
Romelu Lukaku kom inn á sem varamaður og skoraði þrennu í ótrúlegu 5-5 jafntefli West Brom og Manchester United í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Leikurinn var sá 1500. og síðasti sem Sir Alex Ferguson stýrir Manchester United og buðu leikmenn beggja liða upp á markaveislu á kostnað varnarleiks sem lítið sást af. United komst í 3-0 í fyrri hálfleiknum með mörkum Kagawa og Buttner auk þess sem Jonas Olsson skoraði sjálfsmark. Shane Long minnkaði muninn fyrir heimamenn undir lok fyrri hálfleiksins og kveikti vonarneista hjá stuðningsmönnum West Brom sem leist ekkert á blikuna. Paul Scholes fékk gult spjald í síðasta leik sínum með United.Nordicphotos/Getty Romelu Lukaku kom af bekknum í hálfleik og óhætt er að segja að Belginn hafi breytt gangi mála. Hann minnkaði muninn snemma í hálfleiknum með fínu skoti utan teigs og staðan orðin 3-2. Mörk frá Javier Hernandez og Robin van Persie komu United hins vegar í 5-2 og stefndi í stórsigur United þegar tíu mínútur lifðu leiks. Þá settu heimamenn í gang. Lukaku og varamaðurinn Marc-Antoine Fortune skoruðu hvor sitt markið á sömu mínútunni og fjórum mínútum síðar jafnaði Lukaku metin eftir atgang í vítateig United. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu til að tryggja sér sigurinn undir lokin en án árangurs. Úrslitin skiptu engu fyrir lokastöðu liðanna í deildinni. United löngu búið að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn og West Brom hafnar í 8. sæti.
Enski boltinn Tengdar fréttir Norwich skellti City og Nolan með þrennu Kanarífuglarnir frá Norwich gerðu sér lítið fyrir og unnu 3-2 sigur á andlausu liði Manchester City á útivelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. 19. maí 2013 00:01 Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” Íslenski boltinn „Það er ekkert högg, það er bara að rísa“ Sport „Maður uppsker eins og maður sáir“ Sport Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira
Norwich skellti City og Nolan með þrennu Kanarífuglarnir frá Norwich gerðu sér lítið fyrir og unnu 3-2 sigur á andlausu liði Manchester City á útivelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. 19. maí 2013 00:01
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn