Latir unglingar áhyggjuefni 30. mars 2013 13:47 Þessi tekur því rólega. Mynd/Getty
Hreyfingarleysi ungmenna er orðið samfélagsmein og foreldrar þurfa verulega að taka sig á til að breyta lífstíl barna sinna. Þetta segir skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurlands sem segir ungmenni orðin latari en áður og það sé áhyggjuefni. Frumniðurstöður nýlegrar rannsóknar hjá íþrótta og heilsufræðideild Háskóla Íslands sýna að ungmenni sem fylgst var með á aldrinum níu og fimmtán ára og síðan aftur þegar þau voru 17 og 23 ára hreyfðu sig helmingi minna átta árum síðar. Þá hreyfir 23 ára einstaklingur sig jafn mikið og áttræður eldri borgari samkvæmt samanburði við aðra rannsókn. Forsvarsmaður rannsóknarinnar Erlingur Jóhannsson prófessor í íþrótta og heilsufræði sagði foreldra ekki nógu meðvitaða um hreyfingu barnanna sinna. Grunnskólakerfið stæði sig en það væri áhyggjuefni að íþróttakennslu í framhaldsskólunum væri úthýst til einkarekinna heilsuræktarstöðva. Skólameistarar bæru þar megin ábyrgð. Skólameistari Fjölbrautarskóla Suðurlands er ekki sammála þessu og segir þetta form hafa hentað mörgum. „Það eru auðvitað mjög breytilegt milli skóla með hvaða hætti hreyfing er útfærð en upp til hópa eru skólar að kenna íþróttir. Þetta er í lögum að nemandi á að ljúka átta einingum í líkamsrækt til stúdentsprófs til dæmis." Allir séu skyldugir til að stunda hvers kyns hreyfingu á hverri önn. Eldri nemendur þurfi í sumum skólum ekki að mæta í tíma en þurfi þó að skila vottorði um íþróttaástundun til stúdentsprófs. „Ég held þetta sé samfélagsmein, við förum mjög lítið um öðruvísi en í bíl." Og það sé áhyggjuefni. Nemendur séu yfirleitt keyrðir upp að dyrum í og úr skóla. Foreldrar þurfi alvarlega að skoða lífstíl barna sinna. „Nemendur eru kannski heilt yfir orðnir, ég veit það ekki, latari hreinlega. Þeir nenna þessu ekki og taka lyftuna þegar hún býðst. Heimilin þurfa virkilega að taka sig á, við getum ekki tekið þessa ábyrgð ein vegna þess að þetta gerist líka mjög mikið á heimilunum."
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Fleiri fréttir Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Sjá meira