Innlent

Vök sigraði í Músíktilraunum

Andri Már og Margrét Rán úr Vök.
Andri Már og Margrét Rán úr Vök. Mynd/Brynjar Gunnarsson
Hljómsveitin Vök úr Hafnarfirði stóð uppi sem sigurvegari í Músíktilraunum en úrslitakvöldið fór fram í Silfurbergi í Hörpu í gærkvöldi.

Ellefu hljómsveitir höfðu tryggt sér sæti á lokakvöldinu á fjórum undankvöldum sem fram fóru í síðustu viku. Í öðru sæti var sveitin In the Company of Men og í þriðja sæti hljómsveitin Aragrúi.

Hljómsveitina Vök skipa þau Margrét Rán Magnúsdóttir og Andri Már Enoksson. Margrét Rán er 21 árs og spilar á gítar og hljómborð auk þess að syngja. Andri Már er 24 ára, spilar á saxafón auk þess að stjórna tölvu og syngja bakraddir. Hægt er að hlusta á tvö lög með sveitinni hér fyrir neðan.

Sveitin var formlega stofnuð í desember 2012 en þó hafa Margrét og Andri starfað saman mun lengur. Tónlistinni má lýsa sem eiturljúfri raftónlist með melódískum söngi.

Ýmis verðlaun voru veitt og má sjá yfirlit yfir þau hér að neðan:

Sigurvegarar Músíktilrauna 2013

1.sæti: Vök

2.sæti: In The Company of Men

3.sæti: Aragrúi

Hljómsveit Fólksins:

Yellow Void

Einstaklingsverðlaun:

Gítarleikari Músíktilrauna: Hafsteinn Þráinsson / CeaseTone

Bassaleikari Músíktilrauna: Guðmundur Ingi Halldórsson / Sjálfsprottin Spévísi

Píanóleikari Músíktilrauna: Ívar Hannes Pétursson / Elgar

Trommuleikari Músíktilrauna: Björn Emil Rúnarsson / In The Company of Men

Söngvari Músíktilrauna: Hulda Kristín Kolbrúnardóttir / Aragrúi

Rafheili Músíktilrauna: Andri Már Enoksson / Vök

Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku: Villta Vestrið

Vök tekur við verðlaununum úr hendi Jóns Gnarr, borgarstjóra.Mynd/Músíktilraunir







Fleiri fréttir

Sjá meira


×