Hausafundur styrkir taflmannakenningu Svavar Hávarðsson skrifar 2. apríl 2013 12:00 The New York Times, The Scotsman og Daily Telegraph eru meðal miðla sem hafa fjallað um kenningu Guðmundar, og sýnir það hversu frægir gripirnir eru. „
Þetta getur rennt stoðum undir þessa kenningu mína, en á hinn bóginn er allt eins líklegt að þessi fundur hafi nákvæmlega enga þýðingu í því samhengi. Það er ljóst að efniviðurinn var í landinu," segir Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi alþingismaður og forseti Skáksambands Íslands, um einstakan fund í fjöru á Snæfellsnesi. Guðmundur hefur sett fram þá kenningu að elstu taflmenn heims með nútímaútlit, Lewis-taflmennirnir, séu íslenskir að uppruna. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni fann Örn Erlendsson forstjóri þrjá rostungshausa og stakar rostungstennur í fjörunni við sumarhús sitt í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Taflmennirnir fundust hins vegar árið 1831 á skosku eyjunni Lewis. Þeir eru flestir skornir úr rostungstönn og taldir gerðir á árabilinu 1150 til 1200. Lewis-taflmennirnir, eða listmunirnir sem margir telja réttnefni, eru sagðir vera dýrmætustu taflmenn sögunnar sem nú eru taldir meðal fimm merkustu forngripa í eigu Breska þjóðminjasafnsins. Lengi vel var því haldið fram að þeir hefðu verið gerðir í Þrándheimi. Sumir fræðimenn Breska þjóðminjasafnsins telja ólíklegt að gripirnir geti verið af íslenskum uppruna, en vegleg bók um efnið kemur út seinna á þessu ári á vegum fornleifafræðinga hjá Skoska þjóðminjasafninu, þar sem kenningu Guðmundar er gert hátt undir höfði. Guðmundur hefur sett fram þá kenningu að taflmennirnir hafi verið gerðir í Skálholti, og nefnt í því sambandi sem mögulegan höfund Margréti hina högu, sennilega fyrstu myndlistarkonu Íslands, og séu skornir úr rostungstönnum frá Grænlandi. Aðspurður segir Guðmundur að fundur eins og sá á Snæfellsnesi geti rennt stoðum undir það að efniviðurinn hafi verið til staðar, en aldursgreining mundi færa okkur nær sannleikanum. Að minnsta kosti sé ljóst að fundur sem þessi dragi ekki úr þeirri skoðun hans að rostungstennur hafi verið nýttar við útskurð og listsköpun á söguöld á Íslandi.
Mest lesið Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Eldur í sendibíl á Miklubraut Innlent Fleiri fréttir Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Sjá meira