Launahærri hjá SAG 13. ágúst 2012 14:00 Hanna Guðrún Halldórsdóttir, leikkona í Los Angeles, fer með hlutverk í sjónvarpsþáttunum The Newsroom sem sýndir verða á Stöð 2.
Hanna Guðrún Halldórsdóttir leikkona stundar iðn sína í Los Angeles og fer með lítið hlutverk í sjónvarpsþáttunum The Newsroom sem sýndir verða á Stöð 2 í haust. Hanna Guðrún flutti til Bandaríkjanna árið 2007 og útskrifaðist með BA gráðu í leiklist og fjölmiðlafræði í desember. Hún segist hafa upplifað margt skemmtilegt eftir flutningana til Los Angeles og fengið að spreyta sig á ólíkum hlutverkum í kvikmyndum sem og sjónvarpi. Fyrsta hlutverk hennar var í kennslumyndbandi um hvernig bregðast ætti við náttúruhamförum en hlutverkin hafa orðið kræsilegri með árunum og fer Hanna Guðrún til dæmis með lítið hlutverk í sjónvarpsþáttunum The Newsroom sem sýndir verða á Stöð 2 í haust. Hanna Guðrún gerðist einnig nýverið félagi í hinu nýstofnaða SAG-AFTRA, en það er stéttarfélag sem stofnað var í mars þegar hin sögufrægu félög Screen Actors Guild og American Federation of Television and Radio Artists sameinuðust í eitt. Félögin voru bæði stofnuð á fjórða áratug síðustu aldar og var ætlað að standa vörð um hagsmuni leikara og annarra sem störfuðu innan kvikmynda- og fjölmiðlageirans á kreppuárunum. "Ég gerðist meðlimur AFTRA fyrir tveimur árum síðan, en varð meðlimur að SAG rétt áður en félögin sameinuðust. Hið nýja SAG-AFTRA er lokað félag og meðlimir þess mega ekki vinna í verkefnum þeirra sem ekki eru með samning við SAG eða AFTRA, eins og auglýsingum. Laun félagsmanna eru betri en um leið ertu að keppa um hlutverk við marga reyndari leikara," útskýrir hún. Þegar hún er að lokum innt eftir því hvort hún rekist oft á þekkt andlit í tengslum við vinnu sína svarar Hanna Guðrún játandi. "Auðvitað sér maður oft frægt fólk hérna. En oftast er maður bara að sinna sínu starfi og ekki að pæla mikið í því. Ég viðurkenni samt að ég hef alveg orðið smá "starstruck" stundum. Hjartað sló til dæmis aðeins örar þegar sjálfur McDreamy heilsaði mér hjá vatnskælinum á tökustað eitt sinn," segir hún að lokum. sara@frettabladid.is
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira