Annað jafntefli í röð hjá Tottenham í Evrópudeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2012 16:45 Mynd/AFP
Gylfi Þór Sigurðsson spilaði síðustu 23 mínúturnar þegar Tottenham gerði 1-1 jafntefli við gríska liðið Panathinaikos á Ólympíuleikvanginum í Aþenu í kvöld í J-riðli Evrópudeildarinnar. Tottenham komst í 1-0 en fékk á sig jöfnunarmark úr skyndisókn þegar þrettán mínútur voru til leiksloka. Tottenham gerði markalaust jafntefli við Lazio í fyrstu umferðinni. Michael Dawson kom Tottenham í 1-0 tíu mínútum fyrir hálfleik þegar hann skallaði inn aukaspyrnu Tom Huddlestone. Tottenham-liðið var með góð tök á leiknum í fyrri hálfleik og virtist ætla að gera það sem þurfti til að fara með öll stigin heim til Englands. Grikkirnir voru hinsvegar ekki á því en þeir komu líflegir inn í seinni hálfleik og fóru að ógna enska liðinu meira. Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður fyrir Clint Dempsey á 67. mínútu en staðan var þá enn 1-0 fyrir Tottenham. Tottenham-menn voru of værukærir í seinni hálfleik og Jose Verdu Toche jafnaði leikinn á 77. mínútu eftir að hafa fengið frábæra stungusendingu inn fyrir vörnina frá Giourkas Seitaridis. Panathinaikos átti nokkrar ágætar sóknir í lokin og Tottenham gat þakkað fyrir að missa ekki öll stigin frá sér.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira