Ragna: Ég öskra bara á móti Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 30. júlí 2012 09:00 Ragna Ingólfsdóttir verður í kvöld fyrsta badmintonkonan til að keppa á tveimur leikum. Mynd/Valli
Ragna Ingólfsdóttir hefur í dag leik á Ólympíuleikunum í Lundúnum en hún mætir í kvöld Akvile Stapusaityte frá Litháen í fyrri leik sínum í F-riðli einliðaleiks kvenna í badminton. Hún mætir svo Jie Yao frá Hollandi á morgun en einn kemst áfram úr hverjum riðli í 16-manna úrslitin. Yao er ein sextán sterkustu keppanda mótsins sem var raðað í riðlana og hefur Ragna aldrei mætt henni áður. Hún hefur hins vegar unnið Stapusaityte í öll fjögur skiptin sem þær hafa mæst. Leiðinleg inn á vellinumHún kann þó ekkert sérstaklega við þá litháísku. „Hún er frekar leiðinleg inn á vellinum – öskrar mikið og er ekkert mjög viðkunnanleg. Ég hlakka ekki neitt sérstaklega mikið til að spila við hana en það er bara verkefni sem ég þarf að leysa. Ég öskra bara á móti," sagði hún í léttum dúr. Hún græðir á því að viðureign hennar við Yao sé sú síðasta í riðlinum. „Ég get séð leikinn þeirra og punktað eitthvað hjá mér um Yao. En hún er mjög góð – fædd í Kína en spilar fyrir Holland. Hún hefur alltaf verið ofarlega á Evrópumeistaramótum." Á möguleika að komast áframRagna hefði getað fengið mun erfiðari riðil og á sannarlega möguleika á að komast áfram. Sjálf er hún í 81. sæti heimslistans, þrettán sætum fyrir ofan Stapusaityte en talsvert fyrir neðan Yao, sem er í því 20. En Ragna er reynslunni ríkari eftir að hafa keppt í Peking fyrir fjórum árum og er í mjög góðu líkamlegu standi. Hún segir markmiðið einfalt. „Ég ætla bara að reyna að vinna hvern einasta leik. Ég fékk þennan riðil og í sanni sagt veit ég ekki hversu mikla möguleika ég á á að fara áfram. Ólympíuleikar eru svo allt öðruvísi en öll önnur mót og því ætla ég bara að nálgast þetta eins varlega og ég get – taka bara eitt stig fyrir í einu. Það er hægt að æfa mikið og undirbúa sig eins vel og kostur er en staðreyndin er sú að maður hefur ekki hugmynd um hvað bíður manns þegar fyrsti leikurinn hefst." Ragna segir að undirbúningurinn hafi gengið vel eftir að hún kom í Ólympíuþorpið í síðustu viku. Að vísu er sá galli að keppnishöllin, Wembley Arena, er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá Ólympíugarðinum. „Það var langt að fara á æfingar fyrstu dagana en á laugardaginn færði ég mig yfir á hótel sem er mun nær höllinni. Þar verð ég á meðan badmintonkeppnin stendur yfir en kem svo aftur í þorpið," sagði hún. Viðureign Rögnu og Stapusaityte hefst klukkan 18.42 í dag og á Ragna þar með möguleika á að verða fyrsta íslenska badmintonkonan frá upphafi til að vinna viðureign á Ólympíuleikum, en Íslendingar kepptu fyrst í greininni á Ólympíuleikum árið 1992.
Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Fótbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Enski boltinn Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Penninn á lofti í Keflavík FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Palmeiras fyrsta liðið í átta liða úrslit Pogba orðinn leikmaður AS Monaco Norris á ráspól á morgun með yfirburðum Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Mikael mættur til að vinna titla með Djurgården: „Ég er sigurvegari sjálfur“ „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fyrsti sigur Fylkismanna í fimmtíu daga „Þvílík vika“ hjá Andreu Jamaíkamaður í hóp þeirra fljótustu í sögunni Stelpurnar unnu Svía 54 prósent líkur á að stelpurnar okkar komist í átta liða úrslitin á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Brentford hafnaði tilboði Manchester United Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Dagskráin: Formúla 1, pílukast í Bandaríkjunum og tvö golfmót Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Sjá meira