Vösk sveit á afmælisárinu 9. júlí 2012 00:01 í hópi þeirra bestu Eygló Ósk Gústafsdóttir og Sarah Blake Bateman eru þær einu úr íslenska sundhópnum sem náðu OQT-lágmarki fyrir Ólympíuleikana en aðeins bestu sundmenn heims eru í þeim hópi.fréttablaðið/valli
27 íslenskir íþróttamenn keppa fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í Lundúnum sem hefjast eftir rúmar tvær vikur, jafnmargir og á leikunum í Peking árið 2008. Keppnislið Íslands verður formlega kynnt til sögunnar í dag. Í dag verður tilkynnt hvaða íþróttamenn verða sendir til þátttöku á Ólympíuleikunum fyrir Íslands hönd. Þrettán einstaklingar hafa unnið sér inn þátttökurétt í sínum greinum, sem og handboltalandsliðið sem fjórtán leikmenn munu skipa. Í dag fundar framkvæmdastjórn ÍSÍ og verður þá endanlegur hópur staðfestur. Ekki er von á öðru en að allir þeir íþróttamenn sem sérsamböndin hafa tilnefnt fái að keppa á leikunum í ár, enda ekki tilefni til annars. Íslenska sveitin er jafn stór og fyrir fjórum árum síðan þegar leikarnir fóru fram í Peking. Sjö sundmenn taka þátt í leikunum fyrir hönd Íslands en í síðustu viku bættust þrír sundmenn í hópinn – allt karlar – þegar FINA, Alþjóðaólympíusambandið, bauð því sundfólki sem ekki hafði náð Ólympíulágmarki til að fylla upp í 900 manna kvótann sinn. Ragnheiður Ragnarsdóttir var grátlega nálægt því að komast að í 100 m skriðsundi en FINA fullskipaði þátttakendalistann í greininni fyrir helgi og ekki útlit fyrir að það muni breytast í dag. Þó er ekki hægt að útiloka þann möguleika að Ragnheiður bætist við áður en lokað verður fyrir skráningar í dag. Þegar er ljóst að blað verður brotið í íslenskri íþróttasögu á leikunum en í fyrsta sinn mun íslensk boðsundssveit taka þátt. Þær Eva Hannesdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir og Sarah Blake Bateman munu keppa í 4x100 m fjórsundi. Allar nema Eva keppa einnig í einstaklingsgreinum á leikunum. Íslendingar munu keppa á nánast öllum dögum leikanna, sérstaklega ef vel gengur hjá handboltalandsliðinu og ef Ásdís Hjálmsdóttir kemst í úrslit í spjótkasti, sem hún á góðan möguleika á. Ef allt fer á besta veg verður laugardagurinn 11. ágúst, næstsíðasti dagur leikanna, eini frídagur íslensku sveitarinnar. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fagnar aldarafmæli á þessu ári og stóðu vonir til þess að við það tilefni væri hægt að senda metfjölda íslenskra keppenda á leikana. Það hafðist ekki en 32 íþróttamenn fór frá Íslandi á leikana í Seúl árið 1988. 22 karlar og sex konur skipa Ólympíusveit Íslands en árið 2000 fóru níu íslenskar konur á leikana sem haldnir voru í Sydney það árið. Ólympíuleikarnir verða settir föstudaginn 27. júlí næstkomandi og þeim slitið svo sunnudaginn 12. ágúst.
Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Íslenski boltinn Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Fleiri fréttir Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Sjá meira