Valli Sport umboðsmaður Damons Younger 6. mars 2012 09:45 Valgeir Magnússon er nýr umboðsmaður leikarans Damons Younger og hefur mikla trú á honum. Fréttablaðið/anton „
Ég væri ekki að vinna fyrir hann nema ég hefði mikla trú á honum,“ segir Valgeir Magnússon, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Pipar/TBWA og nú umboðsmaður leikarans Damon Younger. Valgeir segir Damon hafa sett sig í samband við hann fyrir nokkru síðan en leikarinn hefur slegið í gegn í myndinni Svartur á leik sem var frumsýnd fyrir helgi. Þar leikur Damon glæpamanninn Brúno sem margir vilja meina að sé eitt hræðilegasta illmenni íslenskrar kvikmyndasögu. „Ég sá myndina fyrst um helgina því ég komst ekki á frumsýninguna og var mjög hrifinn. Myndin er svakalega hörð,“ segir Valgeir en hann var staddur með leikaranum í miðbæ Reykjavíkur á laugardaginn og segir að Damon hafi vakið mikla athygli. „Það voru margir sem gáfu honum gaum og ég tók eftir að flestir virtust einfaldlega hræðast hann sem ég skil núna eftir að ég sá myndina. Hann er mjög sannfærandi illmenni.“ Damon er fyrsti leikarinn sem Valgeir vinnur fyrir en hann hefur hingað til aðeins verið með tónlistarfólk á sínum snærum, eins og Heru Björk söngkonu. „Ég hef helst verið að vinna fyrir þá sem vilja ná árangri erlendis og ætla nú að prufa að vera með leikara. Við ætlum að setjast niður á næstu dögum og fara yfir málin,“ segir Valgeir og vill ekkert gefa út um það hvort næstu skref Damons verði á erlendri grundu. „Það er lítill markaður fyrir leikara á Íslandi og flestir horfa því út fyrir landsteinana. Við sjáum hvað setur en ég hef mikla trú á honum.“ - áp
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira