Lífið

Lagið Allt varð hljótt hljómar í Hunger Games

„Það er ekkert leiðinlegt að eiga tónlistina í mynd sem átti þriðju stærstu opnunina í Bandaríkjunum," segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds, spurður út í lagið sitt Allt varð hljótt.

Það hljómar í kvikmyndinni The Hunger Games sem hefur farið sigurför um heiminn. Aðeins myndirnar Harry Potter and the Deathly Hallows – Part 2 og The Dark Knight hafa náð í meiri pening á frumsýningarhelgi sinni.

Ólafur, sem hefur nýlokið fjögurra vikna tónleikaferð um Evrópu, kíkti í bíó til að sjá The Hunger Games þegar hann var í Sviss. „Ég var mjög sáttur. Þau fóru vel með lagið og gerðu þetta rosa flott," segir hann. „Myndin kom mér á óvart og það var fullt af lítt þekktri „seventís" tónlist í henni."

Lagið, sem er tekið af plötunni Found Songs, hljómar í ofskynjunaratriði í myndinni þar sem nánast ekkert er talað og fá tónar Ólafs því algjörlega að njóta sín í nánast eina mínútu. „Ég fékk smá sjokk. Lagið kom bara allt í einu því ég vissi ekkert hvar það myndi heyrast. Þau breyttu laginu aðeins og ég var svo mikið að hlusta að ég tók ekkert eftir því hvað gerðist í senunni."

Framleiðendur The Hunger Games höfðu samband við Ólaf á síðustu stundu því sá sem var ráðinn til að semja tónlistina átti í vandræðum með lag fyrir þetta ákveðna atriði. „Ég hafði verið í sambandi við þau áður því ég var í viðræðum um að semja tónlistina við myndina. Þær gengu ekki upp og þau fengu þennan í staðinn."

Jennifer Lawrence í hlutverki Katniss Everdeen.
Aðspurður segist Ólafur hafa fengið „allt í lagi" borgað fyrir lagið. „Ég er ekkert að fara að kaupa mér neinar villur fyrir þetta en þetta kemur sér rosalega vel, sérstaklega fyrst myndinni er að ganga svona vel því þá fæ ég einhver stefgjöld. En þetta er aðallega gott tækifæri fyrir mig."

Ólafur hefur áður unnið við Hollywood-mynd því hann samdi alla tónlistina við Another Happy Day með Demi Moore í aðalhlutverki. Spurður hvort hann verði ekki með í væntanlegum framhaldsmyndum The Hunger Games segist hann vona það. „Ég er búinn að biðja umboðsmanninn minn um að ýta á það."

freyr@frettabladid.is


Tengdar fréttir

Unglingar berjast fyrir lífi sínu

Helgin verður frekar róleg þegar kemur að frumsýningum, en aðeins eru tvær myndir frumsýndar. Auk myndarinnar Friends with Kids, sem er fjallað um hér að neðan, er það myndin The Hunger Games sem kemur í kvikmyndahúsin.

Kvikmyndin The Hunger Games sló aðsóknarmet

Kvikmyndin Hungurleikarnir eða The Hunger Games sló aðsóknarmet met um helgina en tekjur af miðasölu henni í Bandaríkjunum náðu 155 milljónum dollara eða tæplega 20 milljörðum króna.

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilgreindri framtíð. Norður-Ameríka heitir nú Panem og er skipt niður í 12 fylki. Einu sinni á ári leggur hvert fylki til strák og stelpu (á aldursbilinu 12-18 ára) sem send eru í óhuggulega útsláttarkeppni þar sem 24 ungmenni berjast um sigur, en aðeins eitt þeirra mun lifa keppnina af.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.