Árni Már: Þetta er greinilega Ólympíutíminn Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 2. ágúst 2012 09:44 Árni eftir sundið í morgun. Mynd/Valli
Árni Már Árnason keppti í 50 m skriðsundi á Ólympíuleikunum í morgun og gat ekki annað en brosað að þeirri staðreynd að hann hafi komið í mark á nákvæmlega sama tíma og í Peking fyrir fjórum árum síðan. „Þetta var meira að segja sama braut. Þetta er greinilega Ólympíutíminn hjá mér," sagði Árni við Vísi eftir sundið í morgun. „Ég er samt ánægður með tímann. Ég ætlaði að fara undir 22,50 en þetta var erfitt. Maður fær bara eitt tækifæri - eitt sund - og þá þarf allt að heppnast." Hann synti á 22,81 sekúndu og var í fimmta sæti í sínum riðli. Alls varð hann í 31. sæti af 58 keppendum en þess má geta að á Ólympíuleikunum í Peking endaði hann í 44. sæti af 97 keppendum.Fékk ekki að synda skriðsund Árni hefur nánast ekkert synt skriðsund síðan á leikunum í Peking árið 2008 þar sem háskóli hans í Bandaríkjunum vildi frekar nota hann í bringusundi fyrir lið sitt. „Ég ákvað bara að kýla á þetta aftur í sumar og reyna að komast inn. Ég náði að bæta mig og komast inn sem ég var mjög ánægður með,“ sagði hann en hann bætti Íslandsmet sitt í greininni í síðasta mánuði þegar hann synti á 22,53 sekúndum. Sá tími dugði til að komast inn á leikana. „Ég bætti mig mikið í sumar og náði að toppa þá. Ég ætlaði að toppa aftur hér en það hefur greinilega ekki gengið nógu vel.“ „Ég er samt sáttur. Skriðið lítur ágætlega út hjá mér og Jacky [Pellerin, landsliðsþjálfari] segir að ég eigi eitthvað inni ef ég einbeiti mér að því áfram.“ Hann segir þó framtíðina óráðna en næst á dagskrá er að taka sér frí. „Ég fer svo aftur út í skólann í haust og klára gráðuna mína um jólin. Svo kem ég heim og ákveði hvað ég geri þá. Framtíðin er óráðin eins og er."Hvert sekúndubrot skiptir máli Meðal þess sem hann segist geta bætt sig í sé viðbragðið. „Það skiptir gríðarlega miklu máli í svona stuttu sundi og ég er ekki með nógu gott viðbragð miðað við sprettsundsgæjana. Það er eitthvað sem ég get unnið í." Það er því hvert sekúndubrot sem telur. „Ég komst að því þegar ég var að reyna að ná lágmarkinu. Það skipti öllu máli að ná þessum tíma, 22,53, því munurinn á þeim tíma og þessum tíma er mikill og gífurlegur fjöldi sundmanna þarna á milli." „Hvert sekúndubrot skiptir máli og það er afar hörð keppni í þessari grein." „Annars gafst lítill tími til að njóta sundsins. Þetta gerist allt sjálfkrafa og það er ekki margt sem fer í gegnum hugann á þessum stutta tíma. Það var aðallega fyrir sundið að maður sá fjöldann og allt sem var að gerast í kringum mann. Það gaf mér góða innspýtingu." „Ég hef annars notið þess að vera á meðal þeirra allra bestu hér á leikunum og þessum íslenska hóp. Þetta hefur verið frábær reynsla og ótrúlega gaman. Ég er mjög ánægður."
Tengdar fréttir Árni: Mikilvægustu 20 sekúndur lífs míns Vísir kynnir til sögunnar íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í London. Í dag er komið að Árna Má Árnasyni sem keppir í 50 m skriðsundi. 2. ágúst 2012 06:00 Árni synti á sama tíma og fyrir fjórum árum | endaði í 31. sæti Árni Már Árnason varð fimmti í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London. Hann kom í mark á tímanum 22,81 sek, sem er nákvæmlega sami tími og hann synti á fyrir fjórum árum á ÓL í Peking. Íslandsmet hans er 22,53 sek., sem hann setti á þeessu ári. 2. ágúst 2012 09:12 Mest lesið Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Fótbolti Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Íslenski boltinn Dagskráin: Formúla 1, pílukast í Bandaríkjunum og tvö golfmót Sport Brentford hafnaði tilboði Manchester United Enski boltinn David Beckham lagður inn á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Olivier Giroud verður liðsfélagi Hákonar Brentford hafnaði tilboði Manchester United Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Umdeildur öryggisvörður fær stuðning frá Haaland Dagskráin: Formúla 1, pílukast í Bandaríkjunum og tvö golfmót Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits David Beckham lagður inn á sjúkrahús Eva Margrét sjöunda á EM Heldur ekki áfram með Leicester Uppgjörið: Serbía - Ísland 1-3 | Allt klappað og klárt fyrir EM Glódís byrjar gegn Serbum á þrjátíu ára afmælisdegi sínum Sjáðu ótrúlegt slysamark gegn fyrstu mótherjum Íslands á EM Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Liðsfélagi hjá AGF sannfærði Mikael um að semja við Djurgården Fotios spilar 42 ára með Fjölni „Er dómarinn bara alltaf í símanum?“ „Við erum bara búin að fara í eina átt og það er upp“ „Nú hljóta viðvörunarbjöllur að hringja“ Einar tekur við Víkingum Sjá meira
Árni: Mikilvægustu 20 sekúndur lífs míns Vísir kynnir til sögunnar íþróttafólkið sem keppir fyrir hönd þjóðarinnar á Ólympíuleikunum í London. Í dag er komið að Árna Má Árnasyni sem keppir í 50 m skriðsundi. 2. ágúst 2012 06:00
Árni synti á sama tíma og fyrir fjórum árum | endaði í 31. sæti Árni Már Árnason varð fimmti í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London. Hann kom í mark á tímanum 22,81 sek, sem er nákvæmlega sami tími og hann synti á fyrir fjórum árum á ÓL í Peking. Íslandsmet hans er 22,53 sek., sem hann setti á þeessu ári. 2. ágúst 2012 09:12