Sport

Eygló: Hefði bætt metið í undanúrslitum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Eygló Ósk Gústafsdóttir var ánægð með niðurstöðuna í 200 m baksundi á Ólympíuleikum í morgun en hún hafnaði þar í 20. sæti og var ekki langt frá því að komast í undanúrslit.

„Ég er mjög ánægð. Ég var fjórum sætum frá því að komast áfram í undanúrslit,“ sagði hún. Eygló var þó tæpri sekúndu frá Íslandsmeti sínu í greininni sem hefði dugað til að komast áfram. Hún segir það þó ekki svekkjandi að hafa ekki bætt metið.

„Alls ekki. Maður er alltaf aðeins hægari að morgni til vegna þess að maður er nývaknaður. Enda eru heimsmet aldrei slegin að morgni til. Ég er því mjög ánægð með tímann miðað við að þetta er morgunsund.“

„Ef ég væri í undanúrslitum og gæti synt aftur um kvöldið myndi ég segja að þetta Íslandsmet væri fallið. Ég er bara mjög ánægð með að hafa lent í 20. sæti á Ólympíuleikum. Það er mjög gott.“

Laure Manadou frá Frakklandi kom í mark á eftir Eygló og var okkar stúlka ánægð með það. „Hún er mjög sterk sundkona. Það er ekki leiðinlegt að vera með svona stórum nöfnum í riðli,“ sagði hún en meðal þeirra sem hún keppti við í morgun var Missy Franklin, heimsmeistarinn í greininni.

Franklin og Eygló eru jafngamlar - báðar fæddar 1995. „Það var var ekkert smá gaman að vera í þessum riðli. Sérstaklega í herberginu sem keppendur eru í fyrir riðilinn - þar var mikið brosað og hlegið. Ég reyndi bara að halda andlitinu og einbeitingunni enda alveg ótrúlega stressuð.“

Franklin virðist hálfgert undur í þessari grein enda varð hún heimsmeistari í fyrra, aðeins sextán ára gömul. „Ég skil hana bara ekki,“ sagði Eygló og hló. „Hún er ótrúleg.“

Hún segist hafa útfært sundið ágætlega. „Ég byrjaði mjög vel og ég hlakka til að sjá millitímana mína. Satt best að segja leið mér samt sem áður eins og ég væri ekki á nógu miklum hraða. Ég hélt að ég væri búin að fara hægar en það er greinilegt að ég var búin að æfa tökin nógu vel - þau voru greinilega sterk og góð.“

Eygló hefur nú keppt í þremur greinum á leikunum en segir að hún hafi aldrei verið stressaðri en fyrir þessa grein. „Ég var titrandi í morgun. En það er gott að geta upplifað svona reynslu. Þetta er skemmtilegasta mót sem ég hef farið á.“

Hún keppir í fjórðu og síðustu grein sinni á morgun þegar boðsundssveit Íslands keppir í 4x100 m fjórsundi.


Tengdar fréttir

Eygló Ósk endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum

Eygló Ósk Gústafsdóttir endaði í 20. sæti af alls 37 keppendum í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun. Eygló kom í mark á tímanum 2:11,31 mín. en Íslandsmet hennar er 2:10,38 mín sem hún setti á þessu ári. Eygló hefði þurft að synda alveg við Íslandsmet sitt til þess að komast í 16 manna úrslit eða 2:10,60 mín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×