Sport

Ragna: Ég öskra bara á móti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ragna Ingólfsdóttir verður í kvöld fyrsta badmintonkonan til að keppa á tveimur leikum.
Ragna Ingólfsdóttir verður í kvöld fyrsta badmintonkonan til að keppa á tveimur leikum. Mynd/Valli
Ragna Ingólfsdóttir hefur í dag leik á Ólympíuleikunum í Lundúnum en hún mætir í kvöld Akvile Stapusaityte frá Litháen í fyrri leik sínum í F-riðli einliðaleiks kvenna í badminton.

Hún mætir svo Jie Yao frá Hollandi á morgun en einn kemst áfram úr hverjum riðli í 16-manna úrslitin. Yao er ein sextán sterkustu keppanda mótsins sem var raðað í riðlana og hefur Ragna aldrei mætt henni áður. Hún hefur hins vegar unnið Stapusaityte í öll fjögur skiptin sem þær hafa mæst.

Leiðinleg inn á vellinumHún kann þó ekkert sérstaklega við þá litháísku. „Hún er frekar leiðinleg inn á vellinum – öskrar mikið og er ekkert mjög viðkunnanleg. Ég hlakka ekki neitt sérstaklega mikið til að spila við hana en það er bara verkefni sem ég þarf að leysa. Ég öskra bara á móti," sagði hún í léttum dúr.

Hún græðir á því að viðureign hennar við Yao sé sú síðasta í riðlinum. „Ég get séð leikinn þeirra og punktað eitthvað hjá mér um Yao. En hún er mjög góð – fædd í Kína en spilar fyrir Holland. Hún hefur alltaf verið ofarlega á Evrópumeistaramótum."

Á möguleika að komast áframRagna hefði getað fengið mun erfiðari riðil og á sannarlega möguleika á að komast áfram. Sjálf er hún í 81. sæti heimslistans, þrettán sætum fyrir ofan Stapusaityte en talsvert fyrir neðan Yao, sem er í því 20.

En Ragna er reynslunni ríkari eftir að hafa keppt í Peking fyrir fjórum árum og er í mjög góðu líkamlegu standi. Hún segir markmiðið einfalt.

„Ég ætla bara að reyna að vinna hvern einasta leik. Ég fékk þennan riðil og í sanni sagt veit ég ekki hversu mikla möguleika ég á á að fara áfram. Ólympíuleikar eru svo allt öðruvísi en öll önnur mót og því ætla ég bara að nálgast þetta eins varlega og ég get – taka bara eitt stig fyrir í einu. Það er hægt að æfa mikið og undirbúa sig eins vel og kostur er en staðreyndin er sú að maður hefur ekki hugmynd um hvað bíður manns þegar fyrsti leikurinn hefst."

Ragna segir að undirbúningurinn hafi gengið vel eftir að hún kom í Ólympíuþorpið í síðustu viku. Að vísu er sá galli að keppnishöllin, Wembley Arena, er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá Ólympíugarðinum.

„Það var langt að fara á æfingar fyrstu dagana en á laugardaginn færði ég mig yfir á hótel sem er mun nær höllinni. Þar verð ég á meðan badmintonkeppnin stendur yfir en kem svo aftur í þorpið," sagði hún.

Viðureign Rögnu og Stapusaityte hefst klukkan 18.42 í dag og á Ragna þar með möguleika á að verða fyrsta íslenska badmintonkonan frá upphafi til að vinna viðureign á Ólympíuleikum, en Íslendingar kepptu fyrst í greininni á Ólympíuleikum árið 1992.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×