Sport

Ásdís æfir í Bournemouth

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ásdís á setningarathöfninni.
Ásdís á setningarathöfninni. Mynd/Valli
Ásdís Hjálmsdóttir er nú stödd í Bournemouth við suðurströnd Englands þar sem hún æfir að kappi fyrir spjótkastskeppnina á Ólympíuleikunum.

Ásdís var hér í Lundúnum í upphafi leikanna enda fánaberi Íslands á setningarathöfninni.

Hún snýr þó fljótlega aftur til Lundúna en hún mun keppa í sinni grein þriðjudaginn 7. ágúst næstkomandi og svo aftur tveimur dögum síðar, ef hún kemst í úrslit.

Alls keppa þrír íslenskir frjálsíþróttamenn á Ólympíuleikunum frá Íslandi en auk Ásdísar eru það Kári Steinn Karlsson í maraþoni og Óðínn Björn Þorsteinsson í kúluvarpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×