Segja það koma til greina að kaupa Grímsstaði á Fjöllum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 31. ágúst 2012 18:32 Steingrímur J. Sigfússon.
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir til greina koma að ríkið kaupi Grímsstaði á Fjöllum og landið verði þar með þjóðareign. Hann telur ríkið hafa efni á að kaupa landið en kaupsamningur sem kínverski fjárfestirinn Huang Nubo gerði við landeigendur hljóðaði upp á 800 milljónir. Heilsíðuauglýsing birtist í dagblöðum í dag þar sem þess er skorað er á Alþingi og ríkisstjórnina að sjá til þess að Grímsstaðir á Fjöllum verði þjóðareign. Hundrað fimmtíu og sex einstaklingar skrifa undir áskorunina. Á meðal þeirra eru Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður og Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona, fyrrverandi ráðherrar, sveitarstjórnarmenn Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra telur til greina koma að ríkið kaupi Grímsstaði á Fjölllum. „Ef að málin geta farið þann farveg þá mundi ég gleðjast yfir því og ég sé að þarna í hópnum eru landeigendur eða að minnsta kosti landeigandi þannig að kannski eru ákveðin tímamót að verða í þessu máli með þessari yfirlýsingu," segir Steingrímur. Ögmundur Jónasson samflokksmaður hans er á sömu skoðun. „Mér finnst það kostur sem komi til greina allavega þurfi að taka þessa áskorun til málefnalegrar umfjöllunar og leiða hana til lykta á vettvangi ríkisstjórnar og Alþingis en þangað er þessari áskorun beint." Kaupsamningur milli kínverska fjárfestisins Huang Nubo og landeigenda Grímsstaða á Fjöllum hljóðaði upp á 800 milljónir króna fyrir 72 prósenta hlut í jörðinni. Steingrímur telur að ríkið hafi efni á að kaupa landið. „Ríkið sæi örugglega mikla kosti í því að fá þessa stóru jörð, leggja hana saman við jarðir sem ríkið á á svæðinu, Víðidal og Möðrudal ef ég man rétt, og þarna er síðan Vatnajökulsþjóðgarður og bandið í honum meðfram Jökulsá á Fjöllum. Þannig að auðvitað höfum við velt þessu máli líka fyrir okkur út frá þessum sjónarhóli," segir Steingrímur. Það eru til peningar fyrir þessu? „ Við erum ekki svo fátæk að við getum ekki stækkað Vatnajökulsþjóðgarð ef málið færi í þann farveg," svarar Steingrímur.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Fleiri fréttir Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Sjá meira