Í hópi upprennandi fatahönnuða Danmerkur 15. ágúst 2012 11:00 Erla lagði upp með að útskriftarlínan yrði klæðileg og samkvæmt viðbrögðum sýningargesta á tískuvikunni í Kaupmannahöfn hefur henni tekist vel til.
Nýútskrifaði fatahönnuðurinn Erla Björk Atladóttir hlaut þann heiður að sýna útskriftarlínu sína tvisvar á tískuviku Kaupmannahafnar dagana 8. til 12. ágúst. Erla lauk námi frá Margrethe-skolen í Kaupmannahöfn og sýndi bæði á útskriftarsýningu skólans og á tískusýningunni Upcoming Designers of Denmark. En hún var valin meðal fimmtán upprennandi fatahönnuða Danmerkur af dómnefnd sem Margaret Dal, innkaupastjóri Magasin du Nord, fór fyrir. Aðeins ein önnur skólasystir Erlu var meðal þátttakenda sem komu víða að. „Þar á meðal úr Designskolen Kolding, Danmarks Designskole, frá London og ein er meira að segja komin út í framleiðslu í Kína," segir Erla. „Það kom mér á óvart að vera valin og þá sérstaklega því ég var að útskrifast úr tveggja ára diplómanámi. Skólinn minn er að vísu elsti fatahönnunarskóli Danmerkur og er því mjög virtur." Útskriftarlína Erlu telur tíu alklæðnaði. „Fötin mín eru mjög klæðileg og ég hef mikið heyrt að fólk vilji eignast þau og að það megi setja þau strax í sölu," segir hún. Margir úr tískuheimi Norðurlandanna sóttu sýninguna, þá sérstaklega danskir fjölmiðlar. Gestgjafinn í ár var vefsíðan Yourlook.ne en þar setur fólk saman draumafataskápinn.„Fötin mín fara víst inn á síðuna og gætu ratað í draumafataskápa," segir hún glöð.-hþt
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira