Sport

Ásgeir: Fórnaði glaður sumarfríinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson. Mynd/Valli
Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirsson er næstur í röðinni en hann keppir í loftskammbyssu af 10 m færi í dag.

„Það er frábært að vera kominn hingað út. Aðstæðurnar eru frábærar, sjálfboðaliðarnir og starfsfólkið vill allt fyrir mann gera og því ekki annað hægt að vera í góðu skapi og njóta þess að vera hér," sagði Ásgeir í samtali við Vísi í Ólympíuþorpinu á dögunum.

Hann fékk að vita með tiltölulega skömmum fyrirvara að hann hefði komist inn á leikana og þurfti því að fórna sumarfríi sem hann var búinn að skipuleggja. „Ég sé alls ekki eftir því," sagði hann og hló. „Þetta er aðeins frábrugðið því sem ég ætlaði að gera."

Ásgeir er ánægður með þá aðstöðu sem skotfimimönnum er boðið upp á. „Skotsvæðið er mjög gott og maður kannast við alla aðra keppendurna. Maður dettur því bara í taktinn. Ég veit núna á hvaða braut ég mun keppa og veit að þetta er allt saman að bresta á."

Hann segist ekki vera með nein ákveðin markmið í huga. „Það er í raun allt saman opið. Ég mun búa að þessari reynslu og njóta þess að vera hér, sama hvernig fer. Það er erfitt að spá í úrslitin enda fer það alfarið eftir því eftir hvernig öðrum gengur."

Sjálfsagt eru fáir Íslendingar sem þekkja vel til skotfiminnar og keppnisfyrirkomulagsins. Ásgeir fellst glaður á að útskýra það fyrir lesendum Vísis.

„Í forkeppninni fær maður samtals 60 skot og er þeim skipt í tíu grúppur. Grúppan er ekki góð ef hún er undir 95 stigum (af 100). Maður vill helst ná minnst 97 stigum."

„Stigin eru svo lögð saman og allt yfir 580 er mjög gott. Það er í heimsklasssa."

„Við erum tæplega 50 sem keppum og þeir átta stigahæstu fara áfram í úrslitin. Í úrslitunum skjóta allir í einu og fá keppendur tíu skot. Hvert skot er talið upp á kommu og er mest hægt að fá 10,9 stig fyrir skotið."

„Þessi stig eru svo lögð saman við stigafjöldann úr forkeppninni og því hægt að fara með úrslitin með ákveðið forskot, gangi manni það vel. Það eru svo bara sá stigahæsti sem ber sigur úr býtum."

Ásgeir viðurkennir að hann sé með ákveðinn stigafjölda í huga fyrir sig. „Á heimsbikarmótum hef ég aldrei farið niður fyrir rúmlega 570 stig. Ólympíulágmarkið er til dæmis 563 stig."

„Til þess að komast áfram í úrslitin þarf líklega 582 stig, miðað við heimsbikarmótin. Og það er tala sem ég er vissulega með aftarlega í kollinum."

Ásgeir Sigurgeirsson

26 ára úr SR

ÓL-greinar:

Loftskammbyssa, 10 m: 28. júlí

Skammbyssa, 50 m frjáls: 5. ágúst




Fleiri fréttir

Sjá meira


×