Sport

Anton Sveinn fyrstur til að keppa í London - nokkuð frá sínu besta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anton Sveinn McKee
Anton Sveinn McKee Mynd/Valli
Anton Sveinn McKee var fyrsti Íslendingurinn til að keppa á Ólympíuleikunum í London í morgun þegar hann stakk sér til sunds í 400 metra fjórsundi.

Anton Sveinn keppti á fjórðu braut í 1. riðli og varð annar í sínum riðli á 4:25,06 mínútum sem er nokkuð frá hans besta.

Anton Sveinn hefur synt hraðast í þessari grein á 4:23,64 mínútum en það var á Íslandsmótinu á dögunum.

Bradley Ally frá Barbados vann riðilinn en hann synti á 4.21,32 mínútum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×