Sport

Ásgeir átti frábæran dag og var hársbreidd frá úrslitum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson. Nordic Photos / Getty Images
Ásgeir Sigurgeirsson, skotmaður úr SR, náði frábærum árangri á Ólympíuleikunum í Lundúnum í dag og var ekki langt frá því að komast áfram í átta manna úrslit.

Keppt var í loftskammbyssu af tíu metra færi en Ásgeir var einn 44 keppenda og hafnaði í 14. sæti með 580 stig. Íslandsmet Ásgeirs í greininni er 586 stig.

Keppnin fer þannig fram að hver keppandi fær að skjóta 60 skot, tíu skot í senn. Eins og Ásgeir sagði í viðtali sem birtist á Vísi í morgun þykir ekki gott að vera undir 95 stigum í hverri umferð en viðtalið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Ásgeir fékk samtals 580 stig og var aldrei undir 96 stigum í hverri umferð. Mest fékk hann 98 stig en hann fékk tvisvar 97 stig og þrisvar 96 stig. Hann var með meðaltal upp á 9,667 fyrir skot.

Aðeins vantaði þrjú stig upp á að Ásgeir kæmist í úrslitin því síðasti maður inn fékk 583 stig. Efstur eftir forkeppnina er Suður-Kóreumaðurin Jongoh Jin með 588 stig.

Næsta keppni Ásgeirs er skammbyssa af 50 m færi með frjálsri aðferð og fer hún fram sunnudaginn 5. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×